Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Side 79
5.2 Nánar um Iögbækur nokkurra ríkja, aðdraganda þeirra og áhrif
5.2.1 Inngangur
Segja má að sú „vakningaralda“ um smíði nýrra lögbóka sem fór um nær öll
lönd Suður-Ameríku á 19. öld hafi greinst í nokkrar kvíslir miðað við upptök, efni
og eftir atvikum áhrif. Fyrst má þá nefna þá kvíslina er einkennist af lögtöku
þýðinga á frönsku borgaralögbókinni í nær óbreyttri mynd, eins og nánar var
getið dæma um hér að framan. í öðru lagi skal hér getið um hina vönduðu og að
mörgu leyti frumlegu lögbók frá Chile sem væntanlega er kunnust Suður-
Amerískra lögbóka í heimi samanburðarlögfræðinnar og varð auk þess fyrirmynd
ýmissa lögbóka. Þá verður nefnd til sögu borgaralögbók Argentínu sem einnig
hefur verið talin til þrekvirkja á sviði lagasetningar og hafði jafnframt áhrif til
annana ríkja. Verður nánar vikið að báðum þessum lögbókum hér á eftir. Því næst
skal stuttlega greint frá lögbókum Perú, öllum þeim þremur sem gilt hafa þar, en
þær þykja um margt athyglisverðar, og að lokum verður drepið á lögbækur Brasi-
líumanna, hina eldri og þá nýju, sem eru vissulega merkileg löggjafarverk. Hafði
hin eldri þeirra (og frumvarpsdrög hennar) a.m.k. viss áhrif við gerð eða endur-
skoðun tiltekinna lögbóka í sumum ríkjum álfunnar.
Verður nú vikið örlítið nánar að þeim lögbókum sem hér voru nefndar, en
ekki er á þessum vettvangi ráðrúm til að nefna lögbækur annarra þjóða nema í
sambandi við áhrif þaðan á hinar fyrmefndu eða áhrif frá þessum tilteknu
suður-amerísku lögbókum á aðrar lögbækur þar í álfu.
5.2.2 Um lögbók Chile og höfund hennar
Borgaralögbók Chilebúa frá 1855 er órjúfanlega tengd nafni manns sem ber
hátt í menningarsögu Chile og reyndar gjörvallrar Suður-Ameríku. Það var
Andrés Bello, stjómspekingur, heimspekingur, skáld og lögvitringur, sem tókst á
hendur hið örðuga en jafnframt ögrandi hlutverk að semja drög að heildstæðri
borgaralögbók fyrir Chile. Lauk hann því verkefni með sérstökum glæsibrag eins
og enn er mjög í minnum haft sökum þess m.a., að lögbókin er enn í gildi að stofni
til og að meginefni og ber öll merki um djúpstæða og víðtæka þekkingu, skarpa
hugsun og stílsnilld höfundarins sem löngum hefur verið talinn hinn merkasti og
um leið frægasti löggjafarsmiður og stjómspekingur er verið hefur uppi í Suður-
Ameríku. Hefur hann oft verið nefndur „andlegur faðir“ þeirrar heimsálfu.'
Andrés Bello var ekki Chilebúi að ættemi og uppruna. Hann fæddist í
Caracas í Venesúela 1781. Hann gekk m.a. í háskóla í fæðingarborg sinni og
lagði þar einkum stund á heimspeki, sem hann lauk prófi í, en nam jafnframt
13 Um ævi, störf og áhrif Bellos má m.a. vísa til gagnlegrar greinar eftir Ivan Juksic.
„Constitutionalism and the Rule of Law in Chile: The Role of Andrés Bello“, sem birt verður í
ráðstefnuriti XX. alþjóðaráðstefnu „Latin American Studies Association", er haldin var í
Guadalajara í aprílmánuði 1997, og er hér vísað til hennar með leyfi höfundarins. Margvíslegar og
gagnmerkar ritgerðir eftir Andrés Bello eru m.a. birtar í ritinu Selected Writings of Andres Bello,
Oxford 1998 (í enskri þýðingu Frances Lopez-Morillas; Ivan Jaksic annaðist útgáfuna).
73