Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 86

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 86
greinarhöfundur ræddi við voru á einu máli um að þetta fyrirkomulag hamli rannsóknum í lögfræði þar sem lengst gengur, og sé því ekki æskilegt þegar til lengdar lætur þótt reyndar megi furðu gegna hverju margir stundakennaranna hafa, þrátt fyrir allt, afkastað í fræðistörfum, oftast jafnhliða erilsömum aðalstörfum sínum. Athyglisvert er hins vegar að þetta fyrirkomulag - varðandi mjög fáa fasta lagakennara í fullu starfi annars vegar og stundakennara hins vegar - ríkir einnig víða í einkaháskólum, þar sem fjárhagur er þó a.m.k. eitthvað betri en í flestum rrkisháskólanna, en sumst staðar eru þá uppi áætlanir um að breyta þessu til betri vegar. Athyglisvert er að lagakennslan í ríkisháskólunum einkennist af klassískum viðhorfum til fræðanna, meðal annars með miklu úrvali kjörgreina sem kunna að vera mjög sundurleitar innbyrðis. Þar er t.d., auk hinna venjubundnu kjarnagreina, lögð áhersla á réttarsögu, réttarheimspeki og umfjöllun um mann- réttindi með margvíslegu ívafi, svo að dæmi séu nefnd. Við framboð kennslu- greina er, með öðrum orðum, „byggt á breiddinni" ef svo má að orði komast gagnstætt því sem almennt er um lagadeildir einkaháskólanna. í hinum síðar- nefndu er yfirleitt lögð megináhersla á þær greinar einar sem nýtast munu þeim, sem þar hafa lokið námi, í daglegum störfum á helstu sviðum löglærðra manna, einkum þó í störfum sem tengjast ráðgjöf á viðskiptasviði. Þar á því t.d. skattaréttur sitt trausta sæti, oftast sem skyldugrein eins og nú er víða orðið í bandarískum háskólum, og ýmsar hliðstæðar greinar sem ekki er lögð eins mikil áhersla á í ríkisháskólunum þar sem enn er litið á lögfræði fyrst og fremst sem menntagrein á hugvísindasviði og ekki endilega miðað við að allir þeir, sem þaðan útskrifist, geri lagasýslan að lífsstarfi sínu. Víða þurfa þeir sem lokið hafa lagaprófi en vilja öðlast réttindi til að gerast dómarar að gangast undir sérstök próf í því augnamiði, sem oft eru haldin af aðilum utan háskólanna sjálfra, og er þá einnig gert ráð fyrir sérstöku viðbótamámi til undirbúnings þeim prófum. Sumir ríkisháskólarnir eru afar fjölmennir - alltof stórir og fjölmennir að margra mati - og líða fyrir þunglamalega og gallaða stjómsýslu sem sækir um margt til úreltra hefða og vinnubragða gamals skrifræðis. Sem dæmi má nefna að lagadeild ríkisháskólans í Buenos Aires telur um 36.000 nemendur og skrifstofur háskólans ráða ekki einu sinni við að gefa út prófskírteini fyrir þessa nemendur með eðlilegum hætti. Höfundi var m.a. tjáð að nú um stundir tæki það skrifstofukerfið um það bil sjö mánuði að ganga frá fullnaðarskírteinum þeirra manna sem lokið hafa lagaprófi - og eru þeir auðvitað réttindalausir rneðan á þeirri bið stendur! Þá gætir einnig atvinnuleysis meðal margra lög- lærðra manna víða þótt mismikið kveði að því eftir löndum. Viðmælendur höfundar í ríkisháskólanum í Buenos Aires sögðu honum t.d., bæði í gamni og alvöru, að þar í borg væru a.m.k. 50.000 leigubifreiðastjórar og helmingur þeirra væri lögfræðingar! Lagakennslan einkenndist löngum af áhrifum frá hefðbundinni lagakennslu við evrópska háskóla, með stífu fyrirlestrafonni og á háfteygum fræðilegum 80
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.