Tímarit lögfræðinga - 01.04.2003, Page 99
Þá var árlegt jólaball, sem einnig er haldið í samvinnu við framangreind
félög, haldið 30. desember í Kiwanishúsinu við Engjateig. Fjöldi gesta var 66.
Fyrsti fræðafundur ársins 2002 var haldinn í Sunnusal Hótels Sögu 31.
janúar og bar yfirskriftina Breytt skattalög. Akvörðun um rekstrarform lög-
fræðinga og lögmanna. Var frummælandi Ámi Harðarson hdl. og fjöldi gesta
var 29.
Félagið stóð fyrir opnum fundi þann 25. febrúar í samstarfi við lagadeild
Háskóla Islands og Lex ehf. lögmannsstofu. Efni fundarins voru norrænar
reglur um bann við innherjaviðskiptum og dómaframkvæmd með sérstakri hlið-
sjón af fyrsta íslenska innherjadóminum. Fyrirlesari var Dr. Jesper Lau Hansen,
dósent í fjármagnsmarkaðsrétti við Háskólann í Kaupmannahöfn.
Þann 1. mars 2002 tók félagið þátt í ráðstefnu lagadeildar Háskóla íslands
um framtíð laganáms í samvinnu við Hollvinafélag lagadeildar, Dómarafélag
íslands, Lögmannafélag Islands og Orator, félag laganema.
Morgunverðarfundur var haldinn 13. mars í Skála, Hótel Sögu. Develop-
ment in European Energy Law var heiti fundarins og þar var frummælandi dr.
Benjamin G. Richardsson, kennari við School of Law, University of Manchester.
Þann 18. október 2002 var haldið árlegt málþing félagsins í ráðstefnusal
Hitaveitu Suðumesja við Bláa Lónið. Málþingið bar yfirskriftina För yfir
landamæri - mannréttindi eða forréttindi? í upphafi málþings flutti formaður
félagsins stutt ávarp. Að því loknu setti Davíð Oddsson forsætisráðherra mál-
þingið. Fyrirlesarar vora: Caroline Ravaud, yfirmaður skrifstofu eftirlitsnefndar
þings Evrópuráðsins, en erindi hennar bar heitið För yfir landamæri - mann-
réttindi eða forréttindi? Þá fjallaði Georg Lárusson, forstjóri útlendingaeftir-
litsins, um stöðu útlendingamála og útlendingarétt og Jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, um frávísum á landamærum. Stefán Eiríks-
son, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyti, gerði grein fyrir nýrri
löggjöf um málefni útlendinga, Ragnar Tómas Árnason hdl. gerði að umtalsefni
vemd gegn frávísun, brottvísun og framsali á grundvelli 3. gr. Mannréttinda-
sáttmála Evrópu og Hilmar Magnússon hdl. fjallað um það að leita hælis.
Ráðstefnustjóri var Elín Hirst varafréttastjóri.
4. Útgáfustarfsemi
Tímarit lögfræðinga kom að venju út fjórum sinnum á starfsárinu og þakkar
stjóm Lögfræðingafélags Islands Friðgeiri Bjömssyni dómstjóra fyrir afar vel
unnin störf og gott samstarf í hvívetna. Steinunn Guðbjartsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga og eru henni einnig færðar þakkir fyrir vel
unnin störf í þágu tímaritsins.
Fjárhagsleg staða tímaritsins er ekki nógu góð í dag. Tap síðastliðins árs nam
rúmum 740 þúsund krónur. Eigið fé er þó rúmar 3.3 milljónir króna í árslok.
Kostnaður hefur ekki aukist sérstaklega en tekjur hafa dregist saman. Huga
þarf að breytingum á útgáfunni. Nauðsynlegt er að auka tekjur tímaritsins bæði
vegna sölu (áskrift og lausasölu) og auglýsinga.
93