Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Page 11

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Page 11
11 gall fer að telja upp hinar einstöku eðlishvatir og sam- svarandi tilfinningar þeirra, get jeg fyrir mitt leyti ekki leng- ur orðið honum samférða, því að bæði deilir oklcur, eins og raunar hann og aðra, sem eru mjer færari i þeim efnum, á um, hvað sjeu verulegar eðlishvatir eða frumhvatir manna og dýra, og þá einnig, hverjar sjeu hinar frumleg- ustu tilfinningar eða frumkendir þeirra; og svo virðist mjer að auki röðin á þessum frumkendum og frumhvöt- um hjá Mc. Dougall svo ruglingsleg og rjelt af handa- hófi, að jeg kýs þar heldur að fara minna eigin ferða. En þó mun jeg jafnan hafa hliðsjón af þvi, sem Mc. Dougall heldur fram í einstökum atriðum. Óbrigðul merki þess, að einhver eðlishvöt sje veruleg frumhvöt og þá jafnframt tilfinning sú, sem í henni býr, veruleg frumkend, telur Mc. Dougall aðallega tvent: að hún komi fyrir bæði hjá mönnum og skepnum — því að höf. aðhyllist eindregið þróunarkenninguna — og að bæði tilfinningin og tilhneigingin komi fyrir í sturlun og geðveiki hjá manninum, þá er sálarlíf hans fer að leysast upp og frumdrættir þess þvi að koma í Ijós aftur. Notum nú sjer- kenni þessi sem prófsleina á frumkendir þær og frumhvatir, er nú skulu taldar, og sjáum svo til, hvort Mc. Dougall er að öllu leyti sjálfum sjer samkvæmur, eða hvort hann sleppir ekki úr neinu af tilfinningum þeim og tilhneigingum, sem hann hefði að rjettu lagi ált að telja bæði til frum- kenda og frumhvata manna og dýra. I. Forvitniu og vitkendirnar. Fyrst er þá það, að manni eða skepnu verður hverft við, að hún veit ekki, hvaðan á sig stendur veðrið. En þetta, sem á ensku nefnist surprise, en jeg nefni óvæni eða óvæniskend, vill Mc. Dougall ekki viðurkenna sem frumlega tilfinningu, þólt það vitan- lega komi fyrir hæði hjá mönnum og dýrum og það jafnvel hjá hinum lægstu frumverum, að þær hrökkvi í kúfung eða skreppi i kút við sjerhver snögg eða óvænt áhrif. Getur auðvitað verið nokkurt álitamál, hvort nokkur ákveðin til- finning sje því samfara, þegar manni verður bilt við, og þó mun það reynsla ílestra, að þeim sje það heldur óþægi- legt. En um það meira siðar (í I. kalla). A hinn bóginn viðurkennir Mc. Dougall, að furðan sje frumleg lilfinning og forvitnin ein af frumhvötum manna og dýra. En það er mjótt mundangshófið milli óvænis og furðu, eins og sið- ar skal sýnt. Og furðan skiftist á hinn bóginn oft á við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.