Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Page 28

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1918, Page 28
28 legri aðgætni, þá eykur sjálfstraustið manni að eins hug og dug. Yonbrigði. Vonbrigðin koma skyndilega yfir mann, verka oftast nær á mann eins og pústur eða kjaftshögg, enda segir maður oft bæði í gamni og alvöru: »Þetta var Ijóta kjafts- höggið«. t*au koma manni til að hika og hafa gát á sjer. Og þau snúa huganum frá falsvonum og fánýtum ímyndunum að veruleikanum, eins og hann er, og fá menn því til að hafa betri gát á öllu eftirleiðis. Vonbrigðin vekja manni og oft óttablendni og kvíða, og komi þau títt fyrir, þá geta þau dregið kjarkinn úr manni, en ala þá oft beiskju og vonleysi í þess stað. Óttablendui og kvíði. Óttablendni og kviði skapa manni oft óþarfa áhyggjur, en á hinn bóginn knýja þau mann og til nýrra ráða og nýrrar umhugsunar. Sje kvíðinn hæfilegur, getur hann fengið menn til að fara gætilega og vel að ráði sínu. Sje hann aftur á móti úr hófi fram, rænir hann menn oft öllum kjarki. Hættir maður þá oft við alt saman og Ieggur árar í bát. Ef kviðinn verður að vana, snýst hann upp i beygjuhátt og kjarkleysi, er beygir af við hvern minsta andblástur og gerir mann næsta vondaufan um öll áform sín. Yondeyfð og vonleysi. Þegar maður er orðinn vondaufur um eilthvað eða vonlítill yíirleitt, dregur kjarkinn úr manni, en þetta gerir mann oft að síðustu að gauð og tápleysingja. Þar sem vonbrigðin koma skyndilega yíir mann, kemur vondeyfðin smátt og smátt, og vonleysið ekki fyr en öll von er úti. En áður en vonleysið lieltekur mann, kemur ör- væntingin oft yfir mann setn skjót og snögg geðshræring og bjargar manni þá oft út úr vandræðunum með örþrifaráð- um sínum. öi'vænting. Enda þótt venjulegast sje litið svo á örvænt- inguna sem einhverja hina hræðilegustu allra mannlegra tilfinninga, þá er hún það þó ekki nema í örfáum tilfellum. Það sem menn t. d. segja um í daglegu tali, að þeir ör- vænti um, er oft næsta lítilmótlegt, eins og t. d., að þeir komist ekki eitthvað nógu tímanlega. Um verulega örvænt- ing er að eins að ræða, þar sem eitlhvað mikið er í húfi og vonlaúst virðist þó orðið um það, eins og t. d. er um gjald- þrot, virðingamissi, ærumissi, hálfgert eða algert heilsuleysi eða hreint og beint líftjón er að ræða. Er hjer að eins tekið tillit til þessara alvarlegu tilfella, þar sem meira eða minna eða jafnvel alt er í húfi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.