Hugur - 01.01.1996, Page 78

Hugur - 01.01.1996, Page 78
76 Henry Alexander Henrysson kenningar sínar á. Þær virðast byggja á einhvers konar persónulegri næmni einstaklingsins til þess að skilja og skynja tjáningu tilfinn- inga. Hins vegar kem ég ekki auga á neina ítarlega greinargerð fyrir því hvort þessi næmni sé meðfædd, lærð eða eitthvert samkrull þar á milli. Um þetta atriði er Símon ekki nógu nákvæmur. í þriðja og síðast lagi er það stór spurning hvort fagurfræði hans sé ekki of takmörkuð til þess að geta nýst fullkomlega sem listfræði: það getur verið erfitt að gera grein fyrir gildi allra listaverka með því einu að þau veki hjá okkur fegurðartilfinningu. Ég er til dæmis ekki tilbúinn að hafna því að listaverk sé raunverulegt listaverk vegna þess eins að það vekur ekki undir nokkrum kringumstæðum með mér fegurðar- tilfinningu. Það sem mér finnst þó markverðast við List og fegurð er sú stað- reynd að Símon flytur fyrirlestrana í Háskóla íslands fyrir almenning til þess að uppfræða hann um hvað list og fegurð snúist í raun og veru og til þess að vara fólk við því að hengja dóma sína um list í einhverju sem á ekkert skylt við list. Þó það væri ekki nema í þessu ljósi er verk Símonar merkilegt framlag til íslenskrar heimspekisögu, heimspekileg hugsun er tengd við íslenskan veruleika. En þess utan er íslensk heimspeki miklu ríkari af því að eiga List og fegurð, því sem undirstöðurit í fagurfræði stendur það alveg fyrir sínu enn í dag. Það svarar kannski, eins og áður sagði, ekki öllum þeim spurningum sem vakna við lesturinn, en það var líka ekki ætlunin með ritinu, þvert á móti var því ætlað að vera kynningarrit - n.k. „hungurvaka“ - um fagurfræði og vekja spumingar, spumingar sem eru alveg jafn lifandi í dag og þær voru þegar Símon flutti fyrirlestrana fyrir tæplega hálfri öld síðan. Þessi tilraun Símonar Jóhannesar Ágústssonar, til þess að uppfræða almenning á heimspeki- legum forsendum, hlýtur því að teljast kafli í íslenskri heimspekisögu sem inniheldur útfyllt verkefni hennar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.