Hugur - 01.01.1996, Síða 114
112
Ritdómar
fyrir kennara og nemendur sem eru að byrja að leita fyrir sér í ráðgátum
heimspekinnar.
Viðtökur erlendis
Veröld Soffíu kom fyrst út 1991 og síðan hefur hún farið sem eldur í sinu
um hinn vestræna menningarheim.'^ Það er því við hæfi að hnýta hér við
nokkrum glefsum um viðtökur erlendis. Landi Gaarders, Espen Sommer,
getur þess að sagan hafi vakið miklar deilur í Noregi um hvort viðeigandi
væri að klæða heimspekina í aðgengilegan búning fyrir almenning. Hann
segir norska háskólakennara á móti því setja heimspeki í svona einfaldan
og auðveldan búning. Sjálfur er hann ekki viss um hvort það er af hinu
góða.l^ Annar landi Gaarders, Christian Brandshoi, tekur dýpra í árinni
og fordæmir hana sem yfirborðslega bók handa bömum.^
Bretinn Tony Bass gagnrýnir Gaarder fyrir ónákvæmni hvað varðar
vísindalegar staðreyndir.^ Bandaríkjamaður, Michael Wise, kemur
Gaarder til vamar og bendir á að Gaarder sé hvorki heimspekingur,
vísindamaður né sagnfræðingur - heldur framhaldsskólakennari sem standi
sig í stykkinu.l^ Annar Breti, John V. Ashby, styður landa sinn og vitnar
í eftirfarandi kafla hjá Gaarder sem hann segir hreinan þvætting:
„Nákvæmlega. í upphafi þegar sólkerfið varð til var tunglinu kastað í
12 Samkvæmt fréttum frá Argentínu (skeyti frá Gloríu Arbones) var
Veröld Soffíu fjórða söluhæsta bókin þar 24.4.96, vikuna áður var hún
einu sæti ofar og hafði þá verið samtals 24 vikur á lista yfir söluhæstu
bækur. Gaarder hefur heimsótt Argentínu a.m.k. í tvígang til að kynna
söguna.
Skeytið var sent 18.4.95 á ráðstefnumar sci.philosophy.meta og
sci.philosophy á Intemetinu. Hann segir ennfremur: „The problem is
that the hunger for philosophy has made a lot of grown-ups buy and
read the book, even though it was intended for younger people."
Sommer skýrir ekki, og ég sé ekki, hvemig það getur flokkast sem
vandi að fullorðnir vilji lesa heimspeki ætlaða bömum.
14 „Here in Norway ... no one but pseaudo-intellectuals take this book
seriously. We all can agree that Gaarder has succeded in terms of
popular science, but for people who are interested in leaming about
philosophy, this book is truly a dead end. It's a book for children, and
I regret having read this superficial book.“ Skeytið var sent 22.3.96 á
ráðstefnuna alt.books.reviews frá Háskólanum í Osló. Það er ljóst að
Brandshoi hefur slitið bamsskónum, hann notar „children" sem
skammaryrði.
15 Sent 3.10.95 á ráðstefnuna rec.arts.books frá BT Speech Tecnology
Section.
16 Sent 4.10.95 á sömu ráðstefnu frá University of Nevada