Hugur - 01.01.1997, Page 27

Hugur - 01.01.1997, Page 27
HUGUR Sannleikur og suttungamjöður 25 að þýða myndhvörfin á bókstaflegt mál. Myndhvörfin „maðurinn er úlfur“ eru samkvæmt þessu aðeins stytting á samlrkingunni „menn líkjast úlfum.“ Black heldur því fram að þessi styttingarkenning sé innihaldslaus. Styttingarsinnar telja að myndhvörf hafi rökháttinn „M táknar eitthvað sem lfkist því sem L táknar“. Vandinn er sá að hvert fyrirbæri getur aðeins líkst öðru að einhverju leyti, mismunandi mikið og frá einhverju tilteknu sjónarhomi. Það er ekkert til sem heitir að lrkjast í sér sjálfu, samanber gagnrýni Osbomes á ættarmóts- kenninguna. Því er skynsamlegra að spyrja spuminga á borð við „er A líkt B með tilliti til PT (P táknar væntanlega einhvem eiginleika) eða spurninga á borð við „er A nærri B á P-skala?“ Þegar við beitum myndhvörfum em tvær hugmyndir um tvö mismunandi fyrirbæri virk samtímis. Tökum myndhvörfin „fátæklingarnir eru svertingjar Evrópu.“ Hér eru hugmyndir okkar um evrópska fátæklinga og bandaríska svertingja virkar samtímis. Orðið „svertingi“ fær hér nýja merkingu, það er ekki notað í sinni bókstaflegu merkingu og alls ekki notað í merkingu sem á sér neitt beint samheiti. Hugsum okkur að myndhvörf séu síur, segir Black. Hyggjum í því sambandi að myndhvörfunum „maðurinn er úlfur.“ Til að skilja mynd- hvörfin er ekki nóg að skilja orðið „úlfur“ sínum venjulega orða- bókarskilningi, við verðum einnig að taka með í reikninginn hug- tengsl þau sem orðið jafnan vekur. Við tengjum úlfa gjarnan við grimmd, einmanaleika, hungur o.s.frv. Og ef við notum úlfa- myndhvörf um manninn þá leggjum við áherslu á vissar hliðar á mannskepnunni en ýtum öðrum til hliðar. Við veltum því fyrir okkur hvort mannskepnan sé lík úlfum með tilliti til vissra eiginleika. Segja má að úlfamyndhvörfin móti mynd okkar af manninum og öfugt sjáum við úlfinn í nýju ljósi, okkur finnst kvikindin kannski öllu mannlegri en áður. Því má jafnvel halda fram að myndhvörfin skapi fremur en uppgötvi það sem er líkt með fyrirbærum. Það eiga sér stað víxlhrif milli orða sem notuð eru í bókstaflegri merkingu í myndhvörfum (í okkar dæmi ,,maður“) og þeirra sem notuð eru í yfirfærðri merkingu (í okkar tilviki orðið ,,úlfur“). Þess vegna kallar Black kenningu sína „víxlhrifakenningu." Black segir að líkja megi myndhvörfum við það að horfa á himininn gegnum skjá með möttu gleri þar sem eru nokkrar skýrar rákir og ég sé aðeins þær stjömur sem skína gegnum rákirnar. í úlfs-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.