Hugur - 01.01.1997, Page 91
HUGUR
Gagnrýni opinberrar skynsemi
89
á hana. Hugmyndin er jú sú að upphafsstaðan er sértekið líkan af þeim
aðstæðum og málefnum sem upp koma í umræðu um réttlætið og því
er sjálfsagt og eðlilegt að hagræða verði líkaninu og lagfæra það eftir
því sem kenningasmíðinni vindur fram.
Hið velskipulagða samfélag er hugsað sem áþreifanlegur prófsteinn
á sértekin og almenn lögmál, og viðmið er allar reglur og stofnanir
samfélags eiga að lúta. í slíku samfélagi er gert ráð fyrir að lög og
reglur, stofnanir og aðstæður lúti öllum lögmálum og viðmiðum rétt-
lætisins að fullu og að meðlimir samfélagsins viti að svo er og geti
öndvert við fáfræðingana skoðað eigin hag og samfélagsins, stöðu
sína og samfélagsins, eins nákvæmlega og hver vill og þörf krefur í
hveiju málefni. Hið velskipulagða samfélag á þannig að vera líkan af
áþreifanlegu samfélagi í fullri stærð og nákvæmt í öllum smáatriðum.
Hið velskipulagða samfélag tekur þannig til alls innihalds þeirra
reglna og lögmála sem aðeins sjást í formi og aðferðum í hinu
sértekna líkani upphafsstöðunnar. í umfjöllun um hið velskipulagða
samfélag má þannig færa hvers kyns rök úr sögu og reynslu, með
einstökum dæmum af raunverulegum samfélögum og sérstöku áþreif-
anlegu skipulagi þeirra, en slíkar rökfærslur eru óheimilar í upphafs-
stöðunni vegna þess að hula fáfræðinnar sviptir fáfræðingana öllu efni
til þeirra.
Upphafsstaðan er uppspretta kennisetninga sem síðan eru prófaðar í
velskipulögðu samfélagi og endurskoðaðar í ljósi prófunarinnar og
svo prófaðar enn á ný og þannig koll af kolli þar til jafnvægi næst.
Þessum boltaleik milli upphafsstöðunnar og hins velskipaða samfélags
lyktar með því sem Rawls kallar jafnvægi ráðagerðarinnar (reflective
equilibrium). (Boltaleikurinn minnir mjög á hið díalektíska ferli sem
Hegel lýsir snemma í Philosophie des Rechts og er grunntónn mikill í
allrl hugsun hans.)
Kennisetningar spretta fram í upphafsstöðunni með þeim hætti að
hinir fáfróðu en sanngjörnu sem þar eru saman komnir semja um
meginviðmið reglna og stofnana þess samfélags sem þeir ætla að hafa
með sér um aldur og ævi. Einmitt vegna þessara ímynduðu samninga í
upphafsstöðunni meðal fáfróðra, kennir Rawls kenningu sína við eldri
samningskenningar og telur sig til þeirrar hefðar sem slrkar kenningar
mynda. Ennfremur er þama í upphafsstöðunni að finna ástæðuna fyrir
því að Rawls kallar kenningu sína gjaman kenningu um réttlœtið sem