Hlín - 01.01.1924, Side 2

Hlín - 01.01.1924, Side 2
Kvennaskólinn á Blönduósi. Kensla hefst hinn 15. október í haust og stendur til 14. maí í vor. Kent er: Hússtjórn, vefnaður, allskonar kvenfatasaumur og önnur handavinna, og karlmannafatasaumur í sjerstakri deiid. í bóklegu er aðaláhersla lögð á íslensku, reikning og náttúrufræði. Inntökuskilyrði í skólann eru þessi: a. Að umsækjandi sje ekki yngri en, 14 ára. b. Að hann hafi engan næman sjúkdóm. c. Að hann hafi vottorð um góða hegðun. d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sje greitt við inntöku, og ábyrgð sett fyrir eftirstöðvum. e. Að umsækjandi sanni með vottorði, að hann hafi tekið fullnaðarpróf samkvæmt fræðslulögum, ella gangi undir inntökupróf þegar hann kemur í skól- ann. — Skólagjald er 75 kr. um námstímann. Nemendur hafa haft matarfjelag og skólinn sjer um allar nauðsynjar. Skólinn leggur námsmeyjum til rúmstæði méð dýnum og púðum. Annan sængurfatnað verða þær að leggja sjer til. Umsóknir um inntöku í skólann sendist formanni skóla- stjórnarinnar, alþm. Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka, fyrir miðjan september n. k. Garðyrkjunámsskeið Ræktunarfjelags Norðurlands verður haldið yfir vorið og sumarið 1925 með líku fyrirkomulagi og verið hefir.

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.