Hlín - 01.01.1924, Page 28

Hlín - 01.01.1924, Page 28
26 Hlín heimilisiðnaði á einhverjum af hinum stóru kaupsýning- um (Messer), sem á seinni árum eru orðnar svo tíðar á Norðurlöndum. Dagblöðin sýndu þessum Iitlu syningum hina mestu velvild með vinsamlegum ummælum. — Dansk-íslenska fje- lagið útvegaði hentugt hús ókeypis, og kynti sýninguna fjölda manns, sem áhuga höfðu á íslandsmálum. Bondeungdomslaget í Kristjaníu gerði slíkt hið sama, og kann jeg fjelögum þessum hinar bestu þakkir.* Heimilisiðnaðarfrömuðir fjölmentu í öllum löndunum á sýningarnar og ljetu skoðanir sínar óspart í Ijós. Þótti þeim sem band, unnið úr íslenskri ull, bæði þeli og togi, mundi sóma sjer einkarvel í vefnaði, og vildu komast í samband við okkur um þessi efni. Togið bjuggust þeir við að geta notað bæði í húsgagnafóður og gólfdúka, fanst það líkjast hörnum, sem þeir nota mikið í húsgagna- fóður, en hann er feikna dýr. Hver veit nema togið eigi eftir að komast til vegs og virðingar hjá okkur, en sjálf- sagt verður það ekki fyr, en það er orðið frægt í útlöndum! (Við íslendingar ættum ekki að nota annað en ull í ábreiður og húsgagnafóður, svo er bómullin nú dýr (hækkandi), þegar spunavjelarnar hjálpa til með spunann.) Handspunavjelar þekkjastvekki í löndum þessum. Fjár- ræktarfræðingur einn, úr Dölum í Svíþjóð, sagðist í mörg ár hafa verið að svipast eftir svona áhaldi og ekki fundið, furðaði sig mjög á, að hann skyldi finna það á íslandi. Spunavjel hjeðan fer til hans í haust og líklega önnur til Noregs. ___________ Halldóra Bjarnadóitir. * Norðmenn og íslendingar, búsettir í Noregi, vilja boma á hjá sjer Norsk-íslensku fjelagi, og styður það án efa þetta mál með ráðum og dáð. Svíar eru okkur ókunnugastir, en æskja samvinnu við ísland. Þeir eru smekkmenn miklir um heimilisiðnað, og engin Norður- landaþjóðanna notar svo mikið heimaunnið til klæðnaðar og hí- býlabúnaðar sem þeir, af þeim má því margt læra í þessu elni.

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.