Hlín - 01.01.1924, Page 37
Hliri
35
hvað kann að verða úr Listigarði Akureyrar og hans lík-
um, ef menn aðeins skilja þýðingu þeirra og gagn, og
vinna að framþróun þeirra og fullkomnun með óeigin-
girni og áhuga.
Akureyri í ágúst 1924.
Haraldur Björnsson.
Uppeldis- og mentamál kvenna.
Fræðsla í heimilisstörfum.
»Er nokkuð nýtt að frjetta af hússtjórn-
Horfur. ar_ ega húsmæðrafræðslunni ?« spyrja
menn. — Vonandi er óhætt að segja, að það þokist í
áttina, þó hægt fari. Konur eru að vakna til umhugsunar
og skiinings á hver þörf sje á meiri verklegri fræðslu.
Að vísu hjakkar altaf í sama farjnu um hina fyrirhug-
uðu húsmæðraskóla: Norðurlandsskólann og Staðarfells-
skólann. Þingið síðasta samþykti ekkert, sem miðar að
því að flýta stofnun þeirra, þykist ekki hafa efni. F*ing
og stjórn er löngu orðið þreytt á ríkisrekstrinum, sem
æfinlega kostar stórum meira en ráð er fyrir gert. — Á
meðan svona stendur hagurinn, þarf því að byrja smátt
og þokast áfram hægt og hægt, spila sem mest á eigin
spýtur, reyna að bjargast með það sem fyrir hendi er,
laga það og bæta, halda málinú vakandi, æfa sig og læra.
Með engu móti mega konur leggja hendur í skaut og
bíða aðgerðalausar, þangað til efni verða á að reisa góða
3*