Hlín - 01.01.1924, Side 47

Hlín - 01.01.1924, Side 47
Híln 45 mitt stríðsgróðinn og peningaveltan hafi orðið þjóðinni hefndargjöf, því þá vandist fólk á að fleygja út peningum og fyrirlíta upphæðir. En ekki þýðir að sakast um orðinn hlut. í hverju sem orsakirnar eru fólgnar, þá er þeirra að leita hjá þessari kynslóð og þessum tímum, við verðum því sjálf að taka afleiðingunum eins og þær eru, ef við viljum standast dóm sögunnar og eftirkomendanna. Pingið sem nú situr rökstóla, er meðal annars að ráða fram úr hinum afar örðugu fjármálum. En í raun rjettri getur það svo fátt gert, annað en að hækka tolla og skatta, leggja hömlur á innflutning og hætta eða draga úr öllum verklegum framkvæmdum, sem ríkið hefir með höndum. Alt eru þetta að ýmsu leyti neyðarúrræði, því í sjálfu sjer eykur það ekki þjóðarauðinn, nema að því leyti, sem innflutningshöftin ná tilgangi sínum, með því að draga úr eyðslunni í landinu. — Og í rauninni finst mjer ekki hægt að gera þær kröfur til þings og stjórnar, sem mörgum er gjarnt til að gera, að minsta kosti ekki þegar um svona mál er að ræða. Því að máttur þjóðar- innar liggur hjá henni sjálfri; í viti, orku og vilja hvers einstaklings hennar og þeirra allra í sameiningu, og það- an, að innan frá þjóðinni, verður átakið að koma í því- líku máli og þessu, ef til sigurs á að vinna. Síðan 1918 höfum við talist sjálfstæð þjóð, en það sjálfstæði verður meira í orði en á borði, meðan efnahag okkar er þann veg háttað sem nú er. Nú er því um tvent að velja fyrir hina íslensku þjóð, annaðhvort að láta reka á reiðanum og »fijóta sofandi að feigðarósi«, eða taka með manndómi afleiðingunum af óhöppum og óhygni sinni á liðnum árum, og hafa öll járn í eldi, sem að vopni mega verða í þeirri baráttu að vinna að efnalegu sjálfstæði þjóðarinnar. Stóru drætt- irnir í þeirri framsókn eru: Aukin framleiðsla og meiri sparnaður hjá einstaklingum þjóðarinnar.

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.