Hlín - 01.01.1924, Blaðsíða 73
Hlln
71
leiðbeina þeim. Yrasa örðugleika og mörg óþægindi ér þarna við
að stríða. Verkfærin eru bæði óhentug og ófullkomin, og fer því
mikill tími í að laga þau og bæta, svo nothæf sjeu. Og þrengslin
eru orðin afar mikil. Nú eru 7 vefstólar uppi í samkomusalnum
ásamt ýmsu tilheyrandi dóti, rakgrind o. fl., og svo spunavjelin.
Það er mesta furða hvað rúmast í svo litlum sal. — Nú berast
okkur daglega frjettir af innflutningshöftum o. þ. h., þar á meðal á
álnavöru, fatnaði og prjónlesi. Ef eitthvað verður um framkvæmdir
á þessu, þá má búa3t við, að fólk hjer á landi verði að neyðast
til að búa frekar að sínu hjer eftir en hingað til. Þá getur Iíka
farið svo, að því skiljist betur en nú, að námsskeið eins og þessi
eru ekki þýðingarlaus eða tilgangslaust fálm út í loftið. Það er
vonandi að þeir, sem sótt hafa námsskeiðin, leggi stund á vefnað
framvegis, og notfæri sjer þann veg það, sem þeir hafa numið.
Reglulegt ánægjuefni er að sjá það sem framleitt er í þessum vef-
stólagörmum, og það hlýtur að auka sjálfstæðismeðvitund hvers
manns að vita sjálfan sig geta framleitt þarfir sínar úr sínu eigin efni.*
, t Kembivjelarnar komu hingað (á Húsavík) um
a grímur or- m;gjan nóvembermánuð. Þær eru 3: tvær for-
ergsson, Hal - kembivjelar og ein lopavjel, 60 þráða. Lokið var
clórsstöðum vjg uppsetningu þeirra og að gera við húsið
Laxárdal, skrif- fyr;r áramótin. Hreyfiaflið er olíumótor. Hafa
ar 31. jan. s.l.. pær nú statfað mánaðartíma og reynst vel.
Kemba 60 kg. nettó af smásmökkum á 10 klst. Við sjerkemb-
um í þeim 2 kg. og jafnvel 1, ef á Iiggur. Jeg er því alveg
mótfallinn að slengja ■ saman til kembingar ull tveggja eða fleiri
eigenda. Tel best, að hver eti sitt. Tveir menn annast vjelarnar
og mótorinn, svo og roóttöku og afhendingu ullarinnar. Við höfum
ágæta ullarolíu, og menn láta alment vel yfir kembingunni. Þó geta
stundum komið fram smágallar á henni fyrir handvömm þeirra sem
með verkið fara, en það er því minna sem meiri alúð og vand-
virkni er lögð við starfið, — Vjelarnar kostuðu með umbúðum
hingað komnar 13 þús. kr., mótorinn rífl. 4 þús. og uppsetning og
* Allur þráður og mestalt ívaf var spunnið á spunavjelina.
Það voru ofin 28 stykki (170 metrar). — Grein var gerð iyrir
helstu atriðum við vandaða ullarvinnu og nokkuð fengist við lit-
un. — Skrifuð upp og teiknuð vefjarmunstur. — Sýning frá báðum
vetrarnámsskeiðunum var haldin á Arngerðareyri 3. mai. — Dóm-
nefnd var skipað: Guðrún Ólafsdóttir í Reykjarfirði, Halldóra
Jakobsdóttir í Ögri og Sigurður Þórðarson á Laugabóli.
(Athugasemd kennarans.)