Hlín - 01.01.1924, Page 84

Hlín - 01.01.1924, Page 84
Hið íslenska Fræðafjelag í Kaupm.höfn gefur út ágætar bækur, sem hver fróðleiksfús maður þarf að eignast. F*ær eru lagaðar eftir þörfum almennings, og allur frágangur á þeim hinn vandaðasti. Verðið er að til- tölu lægra en á nokkrum öðrum íslenskum bókum, er komið hafa út á síðustu árum. Hinar bestu alþýðubækur Fræðafjelagsins eru: Ársrit hins Islenska Frœðafjelags. ■ Áttundi árgangur kemur út í sumar og kostar 4 kr.; í honum er æfisaga hins heimsfræga Vilhjálms Stefánssonar og um mann- raunir hans í heimskautalöndunum, saga Stúdentagarðsins í Kaupmannahöfn og íslenskra stúdenta þar og margt fleira. Petta tímarit er talið eitt hið besta og margbreytt- asta, sem út hefir komið á íslensku. ■ Safn Frœðafjelagsins um ísland og íslendinga. 1. og 2. bindi af Minningabók Porvalds Thoroddsen, verð 7 kr. hvort. 3. bindi: Fjórar ritgerðir eftir Porvald Thoroddsen, þar á meðal rækileg saga eldgosa í Vatnajökli og saga fiskiveiðanna við ísland; verð 4 kr. fyrir fasta kaupendur. Allir fróðleiksmenn ættu að gerast fastir áskrifendur að ritum þessum. Endurminningar Páls Melsteðs, verð 2 kr. 50 au. Brjef hans til Jóns Sigurðssonar, verð 2 kr. Islenskt málsháttasafn, lífspeki hinnar íslensku þjóðar; verð 12 kr. Handbók i Islendinga sögu; verð 3 kr. 75 au. Píslarsaga sira Jóns Magnússonar; verð 5 kr. Allar bækurnar eru taldar í ársritinu og í Safni Fræða- fjelagsfns. Umboðsmenn á íslandi eru Bjarni Jónsson bankastjóri á Akureyri, Pjetur Jóhannsson bóksali á Seyð- isfirði, Jónas Tómasson bóksali á ísafirði og Arinbjörn Sveinbjarnarson bóksali í Reykjavík.

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.