Hlín - 01.01.1941, Page 32
30
Hlín
metisnámsskeiðum og standa yíir veturinn með lengri
námsskeiðum. — Með vorinu taki svo við garðyrkju-
leiðbeiningar til 1. júní n. á. — Starfað verður í sam-
ráði við kvenfjelög og búnaðarfjelög sýslunnar og við
Búnaðarsambandið. — Kenslukonan skal hafa laun kr.
200.00 um hvern mánuð, er hún vinnur (alls 1800.00
kr.), enda láni hún kensluáhöld sín endurgjaldslaust.—
Hlutaðeigandi fjelög sjái henni fyrir ókeypis ferðum
innan sýslunnar og dvöl meðan á námsskeiðum stendu)'.
Umferðakensla í Skagafjarðarsýslu.
á vegum Sambands norðlenskra kvenna veturinn 1940
—1941. — Dválarstaðir og þátttaka í námsskeiðunum.
í júní 1940 skrifaði jeg undirrituð, samkvæmt til-
mælum stjórnar S. N. K., kvenfjelögum og nokkrum
ráðandi konum í öllum hreppum sýslunnar og auglýsti
fyrirhugaða umferðakenslu. Var beðið að athuga um
þátttöku í námsskeiðunum og undirbúning. — En sök-
um þess að þessum brjefum hafði ekki öllum verið
svarað, þegar kenslan átti að hefjast, þurfti að undir-
búa þetta nánar og ferðast um nokkurn hluta sýslunn-
ar, áður en kenslan byrjaði. — Fyrsta námsskeiðið
hófst því ekki fyr en þ. 15. sept. í Haganesvík. Það stóð
yfir til 1. okt. — Þarna var ekkert kvenfjelag starfandi.
Var því námsskeiðið haldið á vegum áhugasamra
kvenna, sem lánuðu endurgjaldslaust hús sín og greiddu
fyrir þessu á allan hátt. Þátttakendur voru þarna 11.
Næsta námsskeið var á vegum kvenfjelagsins í Aust-
ur-Fljótum, haldið í Ketilássamkomuhúsi við góð skil-
yrði og bestu aðsókn. — Þar var, þrátt fyrir vonda og
vætusama sumartíð, gnægð kálmetis og bláberja til að
matreiða úr. — Þar var einnig kendur þvottur og lín-
sljettun, og þvoðu ungu stúlkurnar þvott sinn á hinni