Hlín - 01.01.1941, Page 111
Hlín
109
Að endingu skal á það bent, sem mína reynslu, að
ekkert heilbrigt barn eða ungling úr borg eða bæ hefi
jeg fyrir hitt, sem ekki hefur verið sólgið í harðfisk.
Svo að síðustu þetta. Jeg treysti ykkur, íslensku hús-
mæður, sem eigið til í fórum ykkar svo næman skiln-
ing á lífsþörf hins unga barns, fullþroska manns og
hrörnandi gamalmennis, reynið að láta aldrei vanta
harðfisk í bú ykkar. Jeg treysti bændum ykkar til að
verða ykkur samhentir um öflun og aðdrætti hins lífs-
nauðsynlega heimilisrjettar.
Geitaskarði 4. júlí 1941.
Þcrrbjöm Björ'nsson.
Garðyrkja.
Baráttan við arfann.
Ritstj. „Hlínar“ hefur lagt allfast að mjer að senda
„Hlín“ grein um hreinsun illgresis. — En þó mjer sje
ljúft að verða við tilmælum ritstjórans, þá vil jeg þó
strax taka það fram, að jeg hefi engin ný töfraráð að
gefa í baráttunni við arfann. — „Leifturstríð“ á hend-
ur honum hefur lítið að segja. Það verður að vera þrot •
laus barátta frá vori til hausts. En þessi barátta er, eða
þarf ekki að vera, líkt því eins erfið eða vonlaus og
flestum finst. — Það er engin von til þess, að þeir geti
eyðilagt arfann úr görðum sínum, sem sífelt eru dauð-
hræddir við hann og altaf vonlausir um sigur.
Fyrsta skilyrðið til þess að geta náð góðum árangri
er að láta arfann aldrei ná verulegri fótfestu, en gera
L