Valsblaðið - 01.05.2003, Side 7
Starfið er margt
hlutastarfi þrátt fyrir háan aldur. Brynja
Hilmarsdóttir hefur sinnt skrifstofu-
stjóm sem fyrr og Sveinn Stefánsson
stendur í brúnni sem framkvæmdastjóri
eins og áður.
Nýp íþpóttafulltpiíi
Stjóm Vals hefur lengi staðið í viðræðum
við Iþrótta- og tómstundaráð Reykjavík-
urborgar um stuðning ITR við ráðningu
íþróttafulllrúa til félagsins. Hvorki hefur
gengið né rekið m.a. vegna þess að vant-
að hefur íþróttanámskrá fyrir Val. Stjóm-
in tók ákvörðun um að bíða ekki lengur
eftir því að úr málum rættist og réð þann
1. ágúst sl. Þórð Jensson, íþróttakennara,
til starfa sem íþróttafulltrúa félagsins.
Þórður er einnig með menntun í mark-
aðsmálum.
Iþróttafulltrúinn á að skipuleggja og
hafa umsjón með útbreiðslustarfi Vals á
starfssvæði félagsins og sérstaklega að
efla samstarf félagsins við skóla á starfs-
svæðinu, þ.e. Háteigsskóla, fsaksskóla,
Hlíðaskóla og Austurbæjarskóla, en þeir
tveir síðasttöldu em með stærstu skólum
í Reykjavík.
Þá á íþróttafulltrúinn að styðja og efla
bama- og unglingastarf í félaginu með
nánu samstarfi við þjálfara og bama- og
unglingaráð hverrar greinar.
Síðast en ekki síst á íþróttafulltrúinn
að sjá til þess að íþróttanámskrá verði
lokið og að félagið verði gjaldgengt til
styrkja frá ÍTR eins og önnur íþróttafé-
lög í Reykjavík. Væntir stjómin mikils af
störfum Þórðar.
Vert er að geta þess að stjóm Vals-
manna hf tók ákvörðun um að styðja Val
Sigurður Ólafsson við myndina af sér. Einnig sést mynd af Albert Guðmundssyni.
Mjög mikill tími hefur farið í áframhald-
andi viðræður við Reykjavíkurborg á
þessu ári. Eins og menn muna var gerður
rammasamningur við Reykjavíkurborg
um uppbyggingu á Hlíðarenda þann 11.
maí 2002. í þeim samningi var kveðið á
um að gerður yrði sérstakur fram-
kvæmdasamningur (viðauki), sem kvæði
á um nánari útfærslu (útlit og stærð
Samstapf og viðpæðup
við Reykjavikupbopg
Mynd af Sigurði Ólafssyni heiðursfélaga í Val afhjiipuð 11. maí 2003 með aðstoð
Antons Rúnarssonar, fulltrúa yngri kynslóðarinnar í Val.
með því að standa straum af hluta launa-
greiðslna vegna íþróttafulltrúa á þessu
ári. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Vals-
menn hf styðja félagið fjárhagslega og er
skemmst að minnast samnings félagsins
og Valsmanna hf vegna auglýsingaskiltis
við Bústaðaveg, sem er félaginu mikil
búbót. Markmið stofnenda Valsmanna hf
að gera félagið að öflugum bakhjarli
Knattspyrnufélagsins Vals hefur vissu-
lega gengið eftir.
Valsmenn heiðpaðip
Stjóm Vals ákvað að heiðra Guðna
Bergsson eftir heimkomu hans eftir far-
sælan atvinnuknattspyrnumannsferil í
Englandi, en Guðni hefur verið duglegur
við að halda merki Vals á lofti við öll
tækifæri og sýnt félaginu ræktarsemi
sanns Valsmanns. Var haldin samkoma í
hátíðarsal félagsins þann 29. ágúst sl.
Þar var Guðni sæmdur gullmerki Vals og
gerður að sendiherra félagsins í kynning-
ar- og útbreiðslustarfi samkvæmt sér-
stöku embættisbréfi. Var þessi skemmti-
lega nýbreytni endurtekin á herrakvöldi
Vals þann 7. nóvember sl. en þá var Geir
Sveinsson einnig skipaður sendiherra
Vals.
Þeir félagar hafa að sjálfsögðu tekið
hið nýja embætti alvarlega og hafa mætt
í skólana nú í haust með Þórði íþrótta-
fulltrúa til að dreifa nýjum bæklingi þar
sem barna- og unglingastarf Vals var
kynnt fyrir krökkunum.
Stjóm Vals ákvað í upphafi þessa árs
með hvatningu og fjárhagslegum stuðn-
ingi frá fyrrverandi formönnum og vara-
formönnum Vals að heiðra Sigurð Ólafs-
son með því að láta gera málverk af hon-
um til varðveislu í hátíðarsal félagsins.
Sigurði fannst af sinni alkunnu hógværð
og lítillæti þetta vera óþarfa umstang en
lét þó til leiðast að samþykkja þetta. Var
málverkið afhjúpað með viðhöfn á af-
mælisdegi Vals þann 11. maí sl.
Vaisblaðið 2003
7