Valsblaðið - 01.05.2003, Síða 74
+
Hreinn Snævar Hjartarson
fæddur 20. nóvember 1935 - dáinn 3. janúar 2003
í byrjun árs lést góður vinur og Valsmað-
ur Hreinn S. Hjartarson eftir stutt en erf-
ið veikindi. Við Hreinn hittumst fyrst
ungir drengir hjá Knattspyrnufélaginu
Val við æfíngar á Egilsgötuvellinum.
Þjálfari var Jón Þórarinsson, mikill
áhugamaður og góður Valsmaður. Völl-
urinn var lagður rauðamöl, og fengu
rnargir slæm sár við byltur á vellinum, en
gleymdu þeim fíjótt í ákafa leiksins. Síð-
ar hófust æfingar á Hlíðarenda og voru
aðstæður þar til sóma.
Hreinn var fljótt mjög góður knatt-
spyrnumaður, sterkur og fljótur. Ég var
seinni í svifum og það var helst í draum-
um sem ég bar af öðrurn leikmönnum.
Við Hreinn fórum með 2. fíokki til
Þýskalands 1954 og var sú ferð mjög
ánægjuleg og minnisstæð. Hreinn hætti
knattspyrnu alltof fljótt, en þjálfaði ung-
menni hjá félaginu um tíma, enda sannur
Valsmaður. Við Hreinn fórum seinni ár á
flesta Valsleiki meistaraflokks og glödd-
umst innilega yfir sigrum en töpum tók-
um við illa, kenndum oft um óheppni eða
slæmri dómgæslu.
Hreinn starfaði lengst af við logsuðu og
járnsmíðar og vann oft langan vinnudag.
Hann giftist Önnu K. Hafsteinsdóttir
og eru börn þeirra Ama, Snævar og Vil-
hjálmur Thomas stjúpsonur. Snævar lék
knattspyrnu með Val og náði góðum ár-
angri. Anna lést 1996 eftir erfið veikindi,
og varð mikill harmdauði þeim sem
henni kynntust. Síðar kynntist Hreinn
Sólbjörtu Kristjánsdóttur, Sólu, og varð
þeim báðurn ntikið gæfuspor.
Sóla reyndist Hreini frábærilega vel í
veikindunt hans. Árið 1987 hóf Hreinn
störf hjá mér í Gúmmíbátaþjónustunni í
Reykjavík. Reyndist hann góður starfs-
maður. Hans létta lund smitaði frá sér og
leið öllum vel í návist hans.
Fallin er frá góður drengur. Nú á
kveðjustund þakka ég H'reini fyrir góð
störf og vináttu og sendi Sólu. börnum
hans og öðrum aðstandendum hlýjar
samúðarkveðjur.
Asgeir Þ. Oskarsson
Þýskalandsfarar Vals í knattspyrnu 1954. Hreinn Sncevar erfjórði í efri röðfrá vinstri.
74
Valsblaðið 2003