Valsblaðið - 01.05.2003, Page 28

Valsblaðið - 01.05.2003, Page 28
dómari kom þá leist okkur ekki á blik- una, leiknum var frestað um óákveðinn tíma og þama áttum við bara að standa rennvotar og bíða eftir leiknum. Það var í sjálfu sér frekar gaman og við fengum margan manninn til að hlægja að okkur en við vorum í sannkölluðu brandara- maskínuskapi. Keppnisskapið var í há- marki og við Frónbúar vildum helst klára þennan leik. Þetta var án efa mesti stuð- leikur mótsins. Við unnum þennan eftir- minnilega leik örugglega 3-0 og vorurn þar með komnar í 8 liða A úrslit. Við fór- um beint upp í skóla og ekki var mikil orka eftir þannig að flestar fóru beint í háttinn. Morguninn eftir var haldið beint í 8-liða úrslit. Þar mættum við mjög sterku sænsku liði, Hammenhögs IF. Þar lauk þátttöku okkar þetta árið á Gothia Cup í hnífjöfnum leik en þær höfðu heppnina með sér og unnu okkur 1-0. Við vorum sáttar við árangúrinn að lenda í 5.-8. sæti af rúmlega 70 liðum sem tóku þátt í 2. flokki kvenna. Mikið álag var á okkur þar sem hópurinn var ekki fjöl- mennur og sumar gátu lítið leikið vegna meiðsla. Fjörugt líf utan vallar Kvöldin fóru oftast í alls kyns afþreyingu, m.a. í tívolíið Liseberg, í bæinn að skoða mannlífið, o.m.fl. Næstsíðasta daginn fór- um við í Skara Sommerland og þurftum að flytja okkur um skóla og vera með ís- lensku liðunum. I Skara nutum við veð- ursins til hins ýtrasta og fengum adrena- línkikk í rennibrautunum. Sváfum svo á leiðinni í nýja skólann. Versluðum sein- asta daginn og gjörsamlega eyddum síð- ustu aurunum í allt og ekkert. Á þessum tíu dögum sem við dvöldum í Gautaborg varð einn veitingastaður okkur mjög kær, Pizza Hut í Fimmunni. Þar eignuðumst við góðan vin, aðalþjón- inn, sem við kusum að kalla Honey Bunny. Á einhvern dularfullan hátt náðu versl- anir í Gautaborg að tæma veskin okkar eftir að við áttum leið hjá, enda var mik- ið hringt heim og beðið um viðbótar- styrki frá foreldrum. Við enduðum all- flestar með appelsínugulan miða á tösk- unum okkar sem á stóð „heavy.“ Það kom okkur ekkert svakalega á óvart. Þetta var l'rábær ferð í alla staði og hún hefði aldrei tekist jafn vel ef það væri ekki fyrir fararstjórana Ástu og Huldu og þjálfarann okkar hann Jónas. Slappað af í sólbaði í Skara Sommerland eftir vel heppnað mót. Frá vinstri: Christa, Guðrún, Rúna, Sigrún Edda, Jenný, Jóhanna, Lilja, Lea, Signý og Rakel. „Drullugar eftir leik í úrhellisrigningu." Frá vinstri: Jenný, Rakel, Signý, Lea, Lilja, Rúna og Guðrún. sænska liðinu Bjárelaget og gerðum við okkur lítið fyrir og unnum 7-0 þrátt fyrir gríðarlegan hita sem við vorum ekki vanar og eftir leikinn var farið beinustu leið í búð til að kaupa fötur og svampa svo við gætum skvett á okkur. Talandi um hita, þá var mjög erfítt að vera úti og þurftum við helst að ganga um Gautaborg hálf naktar og alltaf með vatnsflösku. Eftir leikina fórum við í sturtu sem var við hliðina á svefnstaðn- um okkar sem var mjög gott vegna þess að þangað fórum við oft á dag vegna hita og svita. Á þriðjudeginum var keppt við annað sænskt lið, Skoghalls FF og við unnum þær 3-0. Á miðvikudeginum vor- um við vongóðar um að vinna riðilinn okkar og spila í 32-liða A úrslitum. Það rættist þegar við unnum örugglega 5-1 danska liðið B 1913. Meðal 8 bestu liða Fimmtudagurinn rann upp og við lögðum af stað í 32ja -liða úrslitin, við kepptum á móti Amas IF frá Svíþjóð og unnum þann leik 1-0 í hnífjöfnum leik! Heppn- ar... Komnar í 16-liða úrslit. Fengum okkur að borða og fórum beint í næsta leik hinurn megin í Gautaborg. Þar áttum við að spila við Vimmerby IF einnig frá Svíþjóð. Það voru þrurnur og eldingar, rigning eins og hellt væri úr fötu og þegar við vorum búnar að hita upp og enginn 28 Valsblaðið 2003

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.