Valsblaðið - 01.05.2003, Síða 31

Valsblaðið - 01.05.2003, Síða 31
Eftip Guðna Olgeirsson Gylfi meðfríðum liópi úr5.flokki karía í knattspyrmi 2003-2004. aðstæður á Hlíðarenda til knattspymu- iðkunar hið snarasta. Yfirbyggt knatthús yrði efst á listanum í forgangsröðinni ef þau fengju einhverju um það ráðið. Gaman að koma aftur að Hlíðarenda oy þjálfa Þeim finnst frábært að koma aftur á Hlíðarenda eftir að hafa villst að heiman eins og þau taka til orða. Þeim fmnst frá- bært að sjá hversu fjölmennir yngri flokkarnir eru orðnir í fótboltanum. Fyrir nokkrunt árum hafi verið erfitt að manna flokkana en nú virðist önnur tíð, flokk- amir eru fullir af mjög frambærilegum leikmönnum sem munu án efa verða miklir gullmolar fyrir félagið. Elísabet segir að það sé gaman fyrir sig að korna aftur inn í yngri flokka þjálfunina hjá félaginu, „Sérstaklega er gaman að taka við einstaklingum í 5. flokki sem Lea, Rakel, Jóhanna og Signý hafa þjálfað. Það er gaman að uppaldir Valsarar séu að verða svo góðir þjálfarar," segir Elísabet og er greinilega ánægð með stöðu mála. Meistarflokkur kvenna í knattspyrnu til alls líklegur Aðspurð h'st Elísabetu afskaplega vel á meistaraflokkshópinn sem sé mjög hæfi- leikaríkur og skemmtilegur. „Liðinu hefur hins vegar ekki gengið eins vel og vænst hefur verið af því og ég lít á það sem mitt hlutverk að bæta það sem þarf til að kom- ast enn lengra. Liðið hefur alla burði til að ná árangri en það kostar vinnu og tíma og við munurn nota tímann vel til að sýna betri árangur," segir Elísabet. la Lanoar aðs^_______________ meo góðu liði l UtíO Guðmundur Steinn Hafsteinsson er leikmaður 4. fl. í knattspyrnu Guðmundur er 14 ára og hefur æft með Val síðan hann var 5 ára. Það er engin sértök ástæða fyrir því að hann gekk í Val önnur en sú að félagið er í hverfinu. Strákarnir úr bekknum voru líka að æfa en eru reyndar flestir hættir. Honum finnst mjög gaman að æfa í Val hefur alltaf verið með góða þjálfara að eigin sögn og hefur aldrei langað að æfa ann- ars staðar. - Hvaða hvatningu og stuðning hef- ur þú fengið frá foreldrum þínuni í sambandi við fótboltann? „Eg hef fengið góðan stuðning frá for- eldrum mínum, þau sýna þvt sem ég er að gera í fótboltanum áhuga og hvetja ntig áfram. Stuðningur foreldra skiptir miklu máli og þegar hann er góður lang- ar mann meira að standa sig vel.“ - Hvernig gekk hjá ykkur á síðasta tímabili? „A síðasta tímabili gekk okkur nokk- uð vel en komumst samt ekki í úrslita- keppnina á Islandsmótinu sem var okkar markmið við enduðum um miðja deild sem gaf alls ekki rétta mynd af því hvað við getum og hefðum átt að gera betur. Annars kepptum við á Reykjavíkurmóti þar sem gekk illa, haustmóti og tveimur innanhússmótum. Hópurinn í 3. flokki núna er mjög góður og við eigum að geta staðið okkur vel.“ - Attu þér fyrirmyndir í boltanum? „Ég fylgist mikið með Michael Ball- ack, hann er frábær leikmaður og skemmtilegt að sjá hvemig hann spilar.“ Hvað þarf til að ná langt í fótbolta eða íþróttum almcnnt. „Það þarf að hlusta á þjálfarann og fara eftir því sem hann segir. Þá þarf að hafa trú á sjálfum sér, borða og sofa vel og svo er aðalatriðið að æfa vel. Það sem ég þarf helst að bæta er að láta boltann ganga fyrr og nota færri snertingar á boltann." - Áttir þú von á því að fá Lollabik- arinn? „Nei, ég átti alls ekki von á því.“ Ungir Valsaran - Hvers vegna fótbolti? „Frænka mín, Guðrún Sæmundsdóttir, var í meistaraflokki Vals og ég byrjaði að fara með henni niðrí Val og fékk áhuga á fótbolta. Að spila fótbolta er það skemmtilegasta sem ég geri. Ég hef ekki æft neitt annað en fótbolta.“ - Hverjir eru þínir framtíðardraum- ar í fótbolta? „Mig langar mest að geta spilað fót- bolta með góðu liði í útlöndum, en mestu skiptir að vera ánægður með það sem maður er að gera og finnast það gaman.“ - Hver stofnaði Val og hvenær? „Það var séra Friðrik 11. maí árið 1911.“ Valsblaðið 2003 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.