Valsblaðið - 01.05.2003, Side 70

Valsblaðið - 01.05.2003, Side 70
Freyr Brynjarsson býr ásamt unnustu sinni Hrefnu Sigurðardóttur í litlu stein- húsi að Hlíðarenda sem byggt var 1916 og lengi notað undir skrifstofur félags- ins. Þau eru einu íbúar með lögheimili að Hlíðarenda þótt margir Valsarar dvelji þar öllum stundum. og unir hag sínum þar vel ásamt unnustu sinni, Hrefnu Sigurðardóttur frá Grinda- vík. Hann segir að það henti ágætlega að búa að Hlíðarenda, stutt að fara í Hlíða- skóla þar sem hann er umsjónarkennari í 7. bekk og stutt á æfingar bæði sem leik- maður og þjálfari. Freyr er fullur til- hlökkunar að sjá breytingar á allri að- stöðu á Hlíðarenda í samræmi við þær lillögur sem hafa verið kynntar og hlakk- ar til þess að spila í nýrri höll sem fyrst. - Hvernig æxlaðist það að þú byrjað- ir í handbolta í Val? „Við vorum nokkrir sterkir strákar í hand- bolta, bæði frá HK og Breiðablik, sem komurn gagngert í Val vegna þess að Bor- is Bjami Akbachev þjálfaði þá 3. flokk Vals, en hann hafði áður verið þjálfari hjá Breiðablik. Hann hafði áður verið þjálfari hjá Val, þjálfað t.d. Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson og fleiri hetjur. Við fórum í Val til að fá alvöru þjálfun. Þessi hópur í 3. flokki var mjög skemmtilegur og okkur gekk ágætlega. Hins vegar hefur þessi ár- gangur ekki skilað sér vel upp í meistara- flokk og ég er nú einn eftir hjá Val úr hópnum. Árið 1994 urðum við bikar- meistarar í 3. flokki og var það stærsti tit- illinn sé ég fékk í yngri flokkunum, en við vorum alltaf við toppinn í 3. og 2. flokki en náðum ekki að landa Islands- meistaratitli." Urslitaleikur bikarkeppninnar 1998 - lenystu prjár sekundur lífsins Freyr minnist þess þegar Valur náði að vinna Fram í úrslitaleik bikarkeppninnar 25 - 24 eftir framlengingu og segist hann aldrei koma til með að gleyma þeim leik. „Ég lék ekki mikið með í upp- hafi en kom inn á undir lok leiksins. Við voruin fjórum mörkum undir þegar lítið var eftir en náðum að komast inn í leik- inn og minnkuðunt muninn í eitt mark. Svo fengum við fríkast á miðjum vellin- um þegar þrjár sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma. Kári Guðmunds- son tók fríkastið og ég stóð fyrir innan punktalínu, sem er í raun ekki leyfilegt en dómararnir gerðu ekki athugasemd við þetta, Framarnir tóku einfaldlega ekki eftir mér, ég fékk boltann beint úr fríkastinu og skoraði jöfnunarmarkið og um leið var leiktíminn búinn. Ég held að þetta hafi verið lengstu þrjár sekúndur í lífi mínu a.m.k. finnst mér þetta hafi ver- ið eilífðartími í minningunni. I framleng- ingunni kom aldrei neitt annað til greina en að vinna leikinn og leiknum lauk með því að Júlíus Gunnarsson skoraði sigur- markið í blálokin í framlengingunni. Stemningin var ólýsanleg og tilfínningin að vinna bikarinn var mjög góð. Framar- ar kærðu leikinn þar sem þeir töldu að jöfnunarmarkið sem ég skoraði hafi ver- ið ólöglegt þannig að það varð ekki end- anlega ljóst fyrr en löngu seinna að okk- ur var dæmdur réttilega sigurinn," segir Freyr og man greinilega þennan atburð eins og gerst hafí í gær. Gengi meistaraflokks karla Gengi meistaraflokks Vals frá 1998 hefur ekki verið verið nægjanlega gott að mati Freys, liðið hefur reyndar misst á undan- fömum árum fjölmarga leikmenn, t.d. Fúsa og Snorra Stein en samt virðast alltaf koma maður í manns stað. Liðið hafi að vísu ekki unnið neina stóra titla undanfarin ár nema Reykjavíkurmeist- aratitilinn 2001 með Geir Sveinssyni og nú 2003 með Oskari Bjarna Oskarssyni. „Hópurinn í vetur er sterkur, fullt af ungum og efnilegum strákum. Oskar Bjarni er að gera góða hluti með liðið og vinnur ntjög faglega og þekkir auk þess flesta strákana í liðinu þar sem hann þjálfaði þá fyrir nokkrum. árum og það þykir mér kostur. Hann þekkir mann- skapinn vel og það er góð stemning í hópnum. Einnig er Geir Sveinsson nokk- urs konar ráðgjafi, hann kemur einu sinni í viku á æfingar og er nteð séræfmgar og gefur okkur góð ráð, það er ómetanlegt. Ég er sannfærður unt að við eigum eftir að gera góða hluti í vetur. Við ætlum okkur titil í vetur það er ekki spuming og okkur hefur gengið vel í haust og erum þokkalega öruggir að komast í úrslita- keppni 8 bestu liða landsins og erum komnir í undanúrslit í bikamum. Við ætl- Valur tók þátt í œfmgamóti í Frakklandi 2001 og spilaði m.a. við Montpellier. Ferðin heppnaðist mjög vel. 1 þessari ferð földu tveir strákar ferðatöskurnar fyrir tvo í hópn- um. Þeir sem urðu fyrir þessum hrekk komust að því hverjir höfðu falið töskurnar og þeir hefiidu sín rœkilega með því að kaupa fisk á fiskmarkaði og koma honum fyrir i Ijósi á hótelherberginu þeirra. Smám saman magnaðist upp stœk lykt affiskinum enda hitnaði hann af Ijósinu en þeir fundu ekki fiskinn. Þegar lyktin í herberginu var orðin það stœk að menn urðu að lialda fyrir nefið þegar gengið varfram hjá herberginu var þeim komið til bjargar en það er ótrúlegt að þeir skyldu geta verið í herberginu, þetta var magnaður hrekkur og rœkileg hefnd. 70 Valsblaðið 2003

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.