Valsblaðið - 01.05.2003, Blaðsíða 79
Eitir Bjarka Sigurðsson
Glœsileg terta ! Boris hló mikið þegar hann átti að skera sjálfan sig.
Þann 12. júlí 2003 átti nterkur maður
afmæli. Hann heitir Boris Bjarni Ak-
bachev og varð sjötugur ásamt því að
eiga 50 ára starfsafmæli. Veisla honum
til heiðurs var haldin í hátíðarsal Vals
að Hlíðarenda sama dag en Boris er
nánast goðsagnarpersóna í handbolta-
heiminum.
Boris Bjami Akbachev kom fyrst sem
þjálfari til íslands árið 1980 og tók við
liði meistaraflokks Vals í handknattleik
og réðst kannski ekki á garðinn þar sem
hann var lægstur heldur tók við hinni
rómuðu „mulningsvér sem kannski var
aðeins farin að hiksta, enda margir leik-
menn komnir af léttasta skeiði. Það má
reyndar segja að þessi tími hjá „kallin-
um“, eins og hann er oft nefndur, hafi
ekki verið neinn dans á rósum, því eftir
tæp 3 ár, ákvað hann að breyta til og
halda aftur til Rússlands. En Boris hafði
samt sem áður ekki setið aðgerðarlaus
hér á landi, heldur ákvað hann strax á
fyrsta ári að kalla unga pilta upp úr 3.
flokki, Geir Sveinsson, Valdimar Gríms-
son, Júlíus Jónasson og Jakob Sigurðs-
son svo einhverjir séu nefndir og leyfa
þeim að æfa með meistaraflokki sem og
þeir gerðu. Þessi ákvörðun Borisar sem
og leiðsögn hans hafði mikil áhrif á
handboltaferil þeirra.
Boris hefur víða skilið eftir sig spor
Arið 1989 kom svo Boris aftur til íslands
og hefur hann verið hér síðan að þjálfa
og leiðbeina yngri flokkum karla og
kvenna ásamt meistaraflokkum nokkurra
liða, svo sem hjá Breiðablik, ÍBV, Val og
nú síðast Haukum, ásarnt því að hafa far-
ið út árið 1994 í eitt ár til ísrael til að
taka við einu af bestu liðunum þar,
Haboel. Ekki má heldur gleyma því að
Boris var ráðinn aðstoðarmaður Þor-
bjöms Jenssonar hjá landsliði Islands
árið 1995 og tók þátt í því að liðið náði
5. sæti á HM í Kumamoto 1997. Það var
því ekki skrýtið að Boris skyldi fá marg-
ar þakkarræður frá handknattleiksdeild-
um félaganna og einstaklingum á afmæl-
isdegi sínum.
Sæmdur gullmerki Vals og silfur-
merki HSI í fjölmennri afmælisveislu
Það sem stóð upp úr var það að Boris var
sæmdur gullmerki Vals og einnig silfur-
merki HSÍ fyrir framlag sitt til handbolt-
ans hér á landi, sem hann var mjög
hrærður yfir. f veislunni var margt um
manninn, frá félögum á Islandi og Rúss-
landi sem og vinir og vandamenn sem
Boris og fjölskylda hefur kynnst hér á
landi. íþróttamaður ársins 2002, Ólafur
Stefánsson, lét sjá sig ásamt öðrum
landsliðsmönnum, bæði karla og kvenna.
Einnig var mikið um unga handbolta-
menn og konur sem Boris hefur komið
nálægt á síðustu árum og margir úr þeim
hópi eru þegar farnir að spila með lands-
liðinu og aðrir farnir að banka á dyrnar.
Rússarnir sáu svo um að fjörið héldi eitt-
hvað áfram fram eftir kvöldi eins og
þeim einum er lagið.
Boris Bjarni Akbachev á afmœlisdaginn.
Haraldur Daði Ragnarsson, formaður
hanknattleiksdeildar Vals og Hörður
Gunnarsson, varaformaður Vals veita
hér Boris Bjarna gullmerki Vals.
Valsblaðið 2003
79