Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 40

Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 40
40 gÓðUR kennAR I : skiptir miklu. Ef hann er hundleiðinlegur endar það með skrópi. Um fimmtungur (21%, n=34) tilgreindi að góður kennari væri ljúfur og góður. Nemandi skrifaði: …rólegur, ljúfur og góður og alls ekki frekur; … smá bros gerir heldur engum mein, kennarar þurfa að brosa meira til nemenda. Jafnmargir (21%, n=34) minntust á mikilvægi þess að kenn- arinn væri hjálpsamur. Um 15% nemenda nefndu þá kosti að kennarinn sýndi þeim virðingu, að hann væri sanngjarn, skilningsríkur og hlustaði á þá. Einn nemandinn skrifaði á þessa leið: Kennarar verða að sýna umburðarlyndi og skilning á ýmsum uppákomum varðandi nemendur. annar sagði: Góður kennari kemur vel fram við nemendur og mætir þörfum þeirra. Og sá þriðji: Það er líka mikilvægt að viðkomandi muni eftir hvernig það var að vera á þessum aldri og taki tillit til þess. Eins og sjá má á mynd 1 nefna 10−11% nemenda að góður kennari geri námsefnið skemmtilegt, að hann geri ekki upp á milli nemenda og þekki námsefnið vel, eins og þessi orð bera með sér: Hann gerir námsefnið skemmtilegt og áhugavert. Hann mismunar ekki nemendum heldur hefur jafnt yfir alla. Hann verður [nemandi undirstrikaði] að þekkja námsefnið vel og vita hvað hann er að tala um. Hægt er að flokka hugmyndir nemenda um kosti góðs kennara í tvo þætti (sjá Moore, 2000). annar þeirra er persónulegir eiginleikar kennara og viðmót. Persónulegir eiginleikar lúta að skapgerð, eins og að kennarinn sé skemmtilegur, góður og blíður. Viðmót kennarans vísar til framkomu hans og félagslegra þátta, að hann sé hjálpsam- ur, sýni nemendum virðingu, sanngirni, skilning og hlusti á skoðanir þeirra. Hinn þátturinn vísar til kennslufræðilegra þátta sem eiga við atriði eins og bekkjarstjórn, að kennarinn sé sveigjanlegur og útskýri námsefnið vel. Á mynd 1 má sjá að af tíu at- riðum sem nemendur nefna oftast snúa sjö að persónulegum eiginleikum kennara og/eða viðmóti hans en þrjú að kennslufræði hans. Niðurstöðurnar benda því til að persónulegir eiginleikar og viðmót kennarans vegi þungt í hugmyndum nemenda um góðan kennara þótt atriði er lúta að kennslufræðilegum þáttum eða verklagi skipti einnig miklu. Aldurs- og kynjamunur í nokkrum atriðum kom í ljós munur á hugmyndum nemenda eftir aldri. Hlutfallslega helmingi fleiri í hópi yngri nemenda (tíu ára) en þeirra eldri (fjórtán ára) lögðu áherslu á að kennarinn væri sveigjanlegur (49% á móti 23%), χ2 (1, n =161) = 11,91, p<0,001. Einn tíu ára hefur orðið: Hann lætur oft hafa frjálst … leyfir manni að spila stundum … hleypir manni stundum í tölvur, leyfir okkur að læra úti þegar veðrið er gott. Svo virðist sem sveigjanleikinn hjá yngri nemendunum vísi til þess að hafa frjálsa stund eða val um viðfangsefni en hjá eldri nemendunum fremur til þess að kennari gefi frí eða víki frá reglum, eins og orð þessa 14 ára nemanda sýna: Góður kennari er sá sem er sveigjanlegur á reglur ef rök nemenda eru marktæk. Enn fremur kom í ljós viðhorfsmunur hjá nemendum eftir aldri á því hvort góður kennari væri góður og blíður, χ2 (1, n =161) = 15,47, p<0,05. Hlutfallslega fleiri tíu ára nemendur (stúlkur 39%, drengir 28%) en fjórtan ára (stúlkur 15%, drengir 3%) minntust á það atriði. Hjá tíu ára dreng kom fram að góður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.