Uppeldi og menntun - 01.07.2008, Page 108
108
mAT Á SkÓlASTARFI
Fjallað er um hlutverk kenninga og vísinda í matsfræðum, hvernig kenningar nýtast
við að byggja upp þekkingu og hvenær þær eru viðeigandi og hvenær ekki. í fjórða
kafla er gerð grein fyrir fimm matsnálgunum og byggir höfundur á þekktri flokk-
un Bandaríkjamannanna Fitzpatrick, Sanders og Worthen. auk þess að kynna mark-
miðs-miðað mat er horft af sjónarhóli stjórnenda, neytenda, sérfræðinga og þátttak-
enda. Hver og ein matsnálgun er kynnt og skýrð, fjallað er um kosti og galla og valin
mats-líkön kynnt. í lok kaflans eru tekin dæmi úr skólastarfi með ólíkri nálgun.
Hinn eiginlegi undirbúningur matsferlisins er ræddur í fimmta og sjötta kafla.
Skipulagning og undirbúningur matsins er efni fimmta kafla þar sem gerð er grein
fyrir mikilvægi undirbúnings, fjallað um helstu skref sem þarf að taka, tilgreint hvaða
spurningum þarf að svara og nefndir helstu þættir sem geta orðið hindranir í mats-
starfi. í sjötta kafla er gerð ítarleg grein fyrir sundurgreinandi og samtengjandi mats-
spurningum og því hvernig viðmið eru valin til að túlka gögnin.
Framkvæmdin, sem felur í sér öflun gagna, greiningu þeirra og túlkun, er rædd í
sjöunda kafla en skýrslugerð og kynning niðurstaðna er viðfangsefni áttunda kafla. í
báðum köflum eru hagnýt ráð um álitamál sem matsfólk getur staðið frammi fyrir og
gagnlegar leiðbeiningar um val á rannsóknaraðferðum og gerð skýrslu.
í síðasta meginkafla bókarinnar, þeim níunda, er fjallað um siðfræði mats. Þar er
fjallað um samskipti matsfólks og hagsmunaaðila út frá nokkrum sjónarhornum og
kynntir bandarískir matsstaðlar sem víða eru notaðir. í lokakaflanum kynnir höfundur
fleiri leiðir sem fara má við mat á skólastarfi. Einnig er farið inn á mikilvægt en við-
kvæmt svið í íslenskri skólamálaumræðu, þ.e. mat á frammistöðu kennara. Spurning-
unni hvað valdi því að mat á frammistöðu kennara, sem notað er víðast erlendis, er
svo lítið notað hérlendis er látið ósvarað þótt höfundur hafi vafalítið heilmikið fram
að færa um það efni.
Mikilvægt er að út komi fræðibækur á íslensku og þær séu skrifaðar af sérfróðu
fólki með íslenskar aðstæður í huga. Þetta er meðal annars mikilvægt vegna þess að
íslenskt efni er lesendum aðgengilegra en erlent. Þá getur efni á íslensku ýtt undir
faglega umræðu, jafnvel að meira verði ritað um viðfangsefnið á íslensku. Bókin Mat
á skólastarfi á einnig að geta hvatt lesendur til að dýpka þekkingu sína með því að lesa
um efnið á erlendum málum.
Inngangur bókarinnar ásamt fyrri hluta kaflans um siðfræði mats mætti vera
skyldulesefni í grunnnámi allra kennara og ætti að vera á náttborði allra skólastjórn-
enda, í raun allra sem leggja stund á uppeldis- og menntavísindi, og jafnvel heilbrigðis-
vísindi, þar sem tekin eru allmörg dæmi af mati á ýmsum sviðum. Eins ætti bókin að
nýtast vel fagfólki í forvarnastörfum en tekin eru nokkur gagnleg dæmi af þeim vett-
vangi.
Til samanburðar á ólíkum matshefðum hefði verið fróðlegt að sjá ítarlegri samantekt
um önnur ríki en Bandaríkin og þannig mátt draga fram skýrari mun á þeim leiðum
sem einstök ríki hafa farið. Hins vegar er ljóst að höfundur þekkir meginstrauma í
matsfræðum vel og bera heimildir þess gott vitni. Þó eru flestar tilvitnanir og dæmi
úr bandarísku samhengi og hallar þar talsvert á lærdóm sem draga má af evrópskri
reynslu. Undirrituð saknar markvissrar umfjöllunar um íslenskan raunveruleika. Slík