Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 10
4
M O R G UN N
Þegar konan var látin var gerður á henni líkskurður,
sem leiddi í ljós, að augntaugarnar höfðu verið gersam-
lega ónýtar frá fæðing.
Þetta dæmi tekur af öll tvímæli um, að konan hafði í
rvefninum sjón, sem algerlega var óháð hinum jarð-
nesku augum.
í þessu sambandi kemur mér í hug annað dæmi, en
það er af vini mínum, Ögmundi Sigurðssyni, fyrrum
skólastjóra Flensborgarskóla. Hann var jafnan alsjá-
andi í draumum sínum eftir að hann var orðinn blind-
ur. Einhverju sinni, er ég kom til hans að morgni dags,
sagði hann mér, að um nóttina hefði hann, í draumi, verið
staddur uppi í Herðubreiðarlindum og notið þar allrar
náttúrufegurðar, eins og alsjáandi maður. Hér er raunar
að nokkru leyti ólíku saman að jafna, því að Ögmundur
Sigurðsson hafði áður komið í Herðubreiðarlindir og
unni þeim síðan, sem einum fegursta bletti fósturjarðar
sinnar, en konan hafði verið blind frá fæðingu og aldrei
séð með jarðneskum augum sínum þá hluti, sem hún
kynntist í draumum sínum. Þó fannst mér röksemda-
færsla Ögmundar athyglksverð, er hann sagði við mig:
Þessi draumur sannar mér, að ég eigi augu, sem sjá þótt
líkamsaugun séu orðin ónýt, og að sú sjón mín muni lifa,
þótt líkaminn deyi.
Frægur augnlæknir, Lindsay Johnson að nafni, sem
auk þess er spiritisti og höfundur stórmerkilegrar bók-
ar um sálarrannsóknir, segir frá skyldu dæmi því, er ég
áðan tók af blindfæddu konunni. Hann gerði augnskurð
á 19 ára gamalli stúlku, sem aldrei hafði litið dagsins
ljós, en þegar hann tók bindið frá augum hennar, kom
það í Ijós, að hún þekkti útlit og klæðnað allra þeirra,
sem voru. í herberginu, og hafði jafnvel nákvæma þekk-
ing til að greina liti, þótt hún kynni vitanlega ekki að
nefna þá.
Eins og blindfædda konan sá í draumum sínum, svo
oru þess einnig dæmi, að heyrnarlaust fólk heyrir í