Morgunn - 01.06.1960, Síða 56
50
MORGUNN
aðeins, að fyrir deyfilyf eða þreytu hafi dregið úr við-
námsþrótti þess. Þrír fimmtu hlutamir liggi svo ein-
hvers staðar milli hinna tveggja. Maður nokkur, sem
framleiðir segulbönd til sefjunar, hefir tjáð mér, að h.
u. b. einn fimmti hluti viðskiptavina hans segi fagnandi
frá skjótum árangri og reynist móttækilegir fyrir sefjun.
Átta af hundraði reynist sér alveg ómóttækilegir og komi
aftur og heimti peninga sína endurgreidda. En milli þess-
ara tveggja flokka séu svo allir hinir, sem ekki nái skjót—
um árangri en geti látið sefjast með tímanum. Ef þeir
haldi áfram að nota segulbandið með hinum sefjandi orð-
um og ráðleggingum, hljóti þeir að lokum það, sem þeir
óska: sjálfstraust eða samræmi í ástalífi sínu, megrun
eða meiri peninga.
Hugsjón lýðræðisins stendur andspænis hinni köldu
staðreynd um vald sef junarinnar. Einn fimmta hluta hátt-
virtra kjósenda er auðveldlega unnt að sefja, sjöunda
hvem mann er unnt að leysa frá þjáningum með því að
gefa honum hreina vatnssprautu, einn fjórði hluti manna
tekur fúslega svefnkennslu, sem er grein sefjunar. Og auk
þessa minnihluta fólks, sem er opið og gætt alltof miklum
fúsleika, kemur svo hinn mikli meirihluti manna, sem
síður er opið fyrir sefjun, en þeim mönnum er samt unnt
að ná valdi yfir, sem þekkja réttar aðferðir og gefa sér
tíma til að nota þær.
Er frelsi einstaklingsins sami-ýmanlegt miklum mót-
tækileika fyrir sefjun? Hvemig er unnt með löggjöf, að
reisa rönd við misnotkun fjármálamannanna, kirkjumann-
anna og stjórnmálamannanna á óhólflegum móttækileika
manna fyrir sefjun og því, sem af henni kann að leiða?
Jón Auöuns þýddi
og tók saman.