Morgunn


Morgunn - 01.06.1960, Side 80

Morgunn - 01.06.1960, Side 80
74 MORGUNN 19. júní bárust góðar fréttir til Casa Magni. Rithöf- undurinn Leigh Hunt, sem þeir Shelley og Byron ætluðu að stofna ársfjórðungsritið The Liberal í samvinnu við, var kominn til Genúa. Shelley hlakkaði mikið til að hitta hann, en það fórst fyrir vegna veikinda konu hans, sem þessa dagana fæddi ófullburða fóstur. 1 sambandi við þetta varð Mary Shelley ljóst, að maður hennar þjáðist af einhverjum óræðum grun um yfirvofandi hættu, eins og hún sjálf. SHELLEY SÉR TVÍFARA SINN. Mary Shelley segir svo frá í dagbók sinni: „Hann segir mér, að nú um skeið hafi hann séð margar sýnir. Hann kveðst hafa mætt sjálfum sér á gangi hérna í brekkunni, og hafi tvífari sinn ávarpað sig og sagt við sig: Hversu lengi ætlar þú að vera ánægður? .... Þegar Shelley hefir verið veikur, hefir hann oft séð slíkar sýnir. En undar- legast var, þegar frú Williams sá hann þannig. Jane Williams er raunar tilfinningarík kona, en hún er ekki gædd ríku ímyndunarafli og er fjarri því að vera tauga- veikluð, hvorki í vöku né svefni. Daginn áður en ég veikt- ist stóð hún við hliðina á Trelawny hérna við gluggann og horfði út á pallinn fyrir utan húsið. Þá þóttist hún sjá Shelley ganga fram hjá glugganum, eins og hann var raunar oft vanur að gjöra, frakkalaus og jakkalaus. Og hún sá hann óðara aftur ganga sömu leið. Þar sem ómögu- legt var fyrir hann að ganga aftur sömu leið, nema með því að fara fyrst yfir vegg, sem var tuttugu fet frá staðn- um, brá henni mjög við þetta og hrópaði: „Guð komi til, getur Shelley hafa stokkið niður af veggnum? Hvað er þetta!“ Trelawny svaraði: „Shelley? Hann hefir alls ekki gengið hér fyrir, hvað eigið þér við?“ Trelawny segir, að svo hafi Jane Williams brugðið, er hann sagði þetta, að hún hafi titrað og skolfið. Og svo reyndist, að þegar þetta gerðist, var Shelley langar leiðir í burtu“. Shelley lagði mikið upp úr þessu, að „sjá sjálfan sig“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.