Morgunn - 01.06.1961, Page 13
MORGUNN
7
líkamningafyrirbæra fyrir framhaldslífi. Það er svo erfitt
að koma verulegum rannsóknum að þessum fyrirbærum,
til annars en að ganga úr skugga um raunveruleik þeirra.
Þó finnst mér sem fyrirbrigðin hjá frú Crandon í Boston
komist lengst í sannanaáttina.
Frú Crandon, sem fyrir nokkru er látin, var kona mikils-
metins skurðlæknis í Boston. Þau hjón bjuggu við virð-
ingu og góðan efnahag, enda var allt hið áratugalanga
starf þeirra að sálarrannsóknum unnið án endurgjalds.
Vitsmunaveran, sem einkum gerði vart við sig hjá frú
Crandon, tjáði sig vera látinn bróður hennar, Walter Stin-
son. Einn víðkunnasti lífeðlisfræðingur sinna tíma, próf.
Tillyard, rannsakaði fyrirbærin hjá frú Crandon fram að
1930, en var lengi í fullum vafa um, að nokkur látinn
maður væri þar að verki. Að lokum sannfærðist hann þó um,
að Walter Stinson stýrði fyrirbærunum hjá systur sinni.
klerkilegasta fyrirbærið, sem gerðist hygg ég þetta:
Af vörum frú Crandon sagði Walter, að hann ætlaði að
líkama hönd sína svo rækilega, að rannsóknamenn gætu
tekið af henni vaxmót. Þetta tókst margsinnis. Þá var
farið að leita eftir, hvort fingramót Walters frá lifanda
lífi væru til, en eins og kunnugt er eru jafnvel dómar í
alvarlegustu glæpamálum reistir á þeirri vissu, að fingra-
mót engra tveggja manna á jörðu séu nákvæmlega eins. Á
rakhnífi, sem Walter Stinson hafði notað skömmu áður
en hann andaðist, fundust fingramót hans. Rakhnífurinn,
ásamt vaxmótunum af hinni líkömuðu hendi, voru send
beztu sérfræðingum, sem völ var á. Þeir lýstu yfir því, að
fingramótin væru ótvírætt hin sömu, og að ekki væri efi
á, að fingramótin, sem tekin voru af rakhnífunum og af
vaxmótunum væru af sama manni.
Raunar hafa hin furðulegustu fyrirbæri á þessu sviði
hlotið óyggjandi staðfestingu. Charles Livermore sann-
fæðrist um að líkömuð vera, sem hann margrannsakaði hjá
miðli, væri framliðin kona hans. Eitt af því, sem sann-
færi hann um það var þetta: Líkamaða veran tók við