Morgunn - 01.06.1961, Side 44
38
MORGUNN
ESP af öðrum uppruna. Ég álít sjálfsagt, að þau séu rann-
sökuð af hleypidómalausum huga og undir ströngum vís-
indalegum skilyrðum. Fáir hafa þá hæfileika til að bera,
svo vel sé, og svokallaðar sálarrannsóknir annara hafa
enga vísindalega þýðingu, nema ef með því fyndist ein-
hver miðill með stórkostlega psi-hæfileika, eins og t. d.
Indriði heitinn Indriðason, sem hefur verið merkilegasti
PK-miðill eða sálarorkumiðill í sögu þessara rannsókna,
ef 50% er rétt af því, sem sagt hefur verið um hann og
það af mönnum, sem engin ástæða er til að væna um ósann-
indi. Að öðru leyti geta spiritistiskir fundir gert nokkurt
gagn með því að sannfæra einhverja, sem orðnir voru vind-
þurrkaðir í norðannæðingum efnishyggjunnar, um það, að
til eru önnur lögmál en þau, sem felast í formúlum eðlis-
fræði og efnafræði.
Prófessor Jung, hinn frægi sálsýkisfræðingur, sagði
fyrir rúmum aldarfjórðungi: „Meðal allra sjúklinga minna,
sem komnir voru yfir miðjan aldur, þ. e. a. 35 ár, hefur
ekki verið einn einasti, sem ekki átti við það vandamál að
stríða, þegar öll kurl komu til grafar, að finna trúaxlega
afstöðu til lífsins. Það er óhætt að segja, að sérhver þeirra
varð sjúkur af því að hann hafði glatað því, sem lifandi
trúarbrögð allra alda hafa veitt fylgjendum sínum, og
enginn þeirra varð raunverulega heilbrigður, ef hann öðl-
aðist ekki aftur trúarleg sjónarmið sín“.
Rannsóknir prófessors Jung, sem hann hefur stundað í
marga áratugi, sýna það, að trúin á annað líf og æðri
máttarvöld er sameiginlegur arfur alls mannkyns, með-
fædd eðlishvöt, sem alveg eins mætti reikna aldur manns-
ins frá og því, að hann tók að ganga á tveimur fótum, því
að það gera fleiri dýr. Það er jafn óeðlilegt að telja slíka
eðlishvöt gagnslausa fyrir líf okkar og farsæld eins og
spuna-eðlishvötina fyrir köngurlóna. Gjafir lífsins eru ekki
gefnar í blindni, jafnvel þótt menn meðtaki þær með aug-
un aftur og lokaðan huga. Og gjafir lífsins eru dásamleg-
ar, þegar þær eru hagnýttar samkvæmt lögmálum þess.