Morgunn - 01.06.1961, Page 46
40
MORGUNN
Sra Kristinn Daníelsson var mikils metinn maður sakir
gáfna sinna og mannkosta. Hann var ástsæll af sóknar-
bömum sínum í báðum þeim prestaköllum, sem hann þjón-
aði, Sandaprestakalli í Dýrafirði og Útskálaprestakalli, og
hann naut mikillar virðingar í þjóðfélaginu. Hann var al-
þingismaður í þrjú kjörtímabil og forseti sameinaðs Al-
þingis á árunum 1914—1917, og mörgum öðrum mikil-
vægum trúnaðarstörfum gegndi hann.
Sra Kristinn varð einn hinna fyrstu presta á íslandi,
sem áhuga fékk fyrir sálarrannsóknamálinu og gerðist
spíritisti. Og hann var þann veg gerður drengskaparmað-
ur, að hann var fjarri því, að þegja um sannfæringu sína.
Eins og hann hafði verið skeleggur baráttumaður á sviði
þjóðmálanna, svo reyndist hann baráttumaður og mikill
stuðningsmaður spíritismans, bæði með erindaflutningi og
ritgerðum.
Hann var kominn hátt á áttræðisaldur, er hann tók við
forsetastörfum í S.R.F.Í. og ritstjórn Morguns að Einari
H. Kvaran látnum, og þá var starfsfjör hans ótrúlegt enn
og áhugi brennandi. Sálarrannsóknamálið var honurn „mik-
ilvægasta málið í heimi“ og hann helgaði því hinstu starfs-
krafta sína í hárri elli.
Hann andaðist 92 ára gamall 10. júlí 1953 umvafinn
virðingu fjölda manna um allt Island og við frábæra um-
hyggju tengdadóttur sinnar, frú Áslaugar Guðmundsdótt-
ur. Hann var þá 71 árs gamall stúdent og nærfellt 69 ára
gamall guðfræðingur og átti yfir langa og viðburðaríka
ævi að líta.
Minningu sra Kristins verður vinum hans gott að
geyma, og þeir, sem unna sálarrannsóknamálinu, elska
minningu hans.