Morgunn - 01.06.1961, Síða 51
MORGUNN
45
legur kjarni allra trúarbragða, enda þótt þau leggi mis-
jafna áherslu á hvort þessara þriggja atriða, nefni guðinn
ólíkum nöfnum og hafi sína sérstöku siði og kenningakerfi.
Þetta er hinn þríeini kjami, sem í rauninni öllu máli skipt-
ir. En hin mikla harmsaga trúarbragðasögunnar er þessi
að í stað þess að leggja alla áherzlu á þennan meginkjai-na,
er og hefur jafnan verið gert mest úr hinu, sem sundrar
og aðskilur. Jafnvel kristnu trúna, sem í eðli sínu er ein
og byggð á opinberun Guðs í Kristi, hafa menn klofið um
aukaatriði og tilbúnar mannasetningar í margar kirkju-
deildir og óteljandi sértrúarflokka, sem fjandskapast inn-
byrðis og telja hverir aðra villutrúarmenn og jafnvel börn
eilífrar glötunar. Þessi litli heimur okkar hér á jörð, hann
er nú greindur, ekki aðeins í fjandsamlegar þjóðir og
flokka vegna mismunandi skoðana í stjórnmálum og keppn-
innar um yfirdrottnun og völd, heldur er hann einnig
greindur í fjandsamlega hópa vegna mismunandi kenn-
inga og leiða, enda þótt takmarkið, kjarninn, sé einn á
báðum þessum sviðum, allherjarbi’æðralag, lífsauðgun og
lífshamingja allra manna.
Sálarrannsóknafélagið sem slíkt heldur ekki fram nein-
um sérskoðunum hvorki í stjórnmálum né heldur í trú-
málum. Það er öllum opið. Þangað er öllum frjálst að
leita. Ekkert er fjær okkur en að gera lítið úr gildi trúar-
innar né þeim þríeina kjarna trúarbragðanna, guðstrúnni,
eilífðartrúnni og trúnni á andlegan þroska mannsins og
fullkomnun bæði þessa heims og annars. En við spíritistar
viðurkennum framhaldslífið sem staðreynd, bæði sögulega
og raunverulega, en teljum það ekki vera aðeins óljóst
trúaratriði, sem menn séu algjörlega frjálsir að viður-
kenna eða hafna af því að það sé bara trú og auk þess sund-
urleit og ósamhljóða í veigamiklum atriðum. Við trúum
því, að það að Kristur birtist lærisveinunum hvað eftir
annað eftir líkamsdauðann, talaði við þá, leyfði þeim jafn-
vel að þreifa á upprisulíkama sínum og gaf að lokum þessa
afdráttarlausu yfirlýsingu: Ég lifi og þér munuð lifa, —