Morgunn - 01.06.1961, Page 56
Skýrir fjarhrifatilgátan þetta?
★
Fjölmargt það af sálrænum fyrirbærum miðlanna, sem
menn kalla „sannanir" fyrir framhaldslífi, sannar elckert
um líf eftir dauðann eða samband við látna menn. Fyrir-
brigðin kunna allt um það að stafa frá látnum mönnum,
en þau bera í sjálfum sér enga sönnun fyrir, að svo sé.
Mörg þeirra má með eins miklum rökum skýra sem fjar-
hrif frá lifandi mönnum, fengin úr huga þeirra, sem með
miðlinum eru.
Verða þá öll hugræn miðlafyrirbæri skýrð með tilgát-
unni um fjarhrif? Verða þau öll þannig skýrð, að dulvit-
und miðilsins hafi sótt vitneskjuna, sem orðsendingarnar
af vörum hans gefa til kynna, í hug jarðneskra manna,
einkum fundannannanna, sem með miðlinum sitja?
Engan veginn. Sumar orðsendingar af vörum miðla,
er tjá sig koma frá framliðnum mönnum, verða alls ekki
skýrðar þannig. Sumar þessar orðsendingar verða ekki á
annan hátt eðlilega skýrðar en svo, að látnir menn standi
þeim að baki. Og það er á þessum sönnunargögnum, sem
spíritisminn reisir þá staðhæfingu sína, að sannað verði
að telja, að látinn lifi.
Að sjálfsögðu geta sum svonefnd miðlaskeyti, sem skýra
má með fjarhrifatilgátunni, engu að síður stafað frá
látnum mönnum, en beinar sannanir fyrir því felast ekki
í þeim.
Hér fara á eftir frásagnir af nokkurum atriðum, sem a.
m. k. er erfitt að skýra svo, sem þar hafi verið um fjai'-
hrif frá lifandi mönnum að ræða, a. m. k. ekki frá þeim
mönnum, sem miðilsfundina sátu. En hitt er ekki leyfilegt,