Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 13
MORGUNN
7
sé tekið, heldur þvert á móti margfaldast við það, að sem
flestum og sem mestu sé af þeim miðlað. Ekki minnkar ljós-
ið við það eitt, að það lýsi öllum í húsinu. Ekki minnkar
þekkingin við það, að mörgum sé af henni miðlað. Ekki verð-
ur fegurðin etin upp til agna þótt margir njóti hennar. Ekki
þarft þú að óttast það, er þú miðlar öðrum af gleði þinni,
að þú eigir þá ekkert eftir handa sjálfum þér. Og ekki þarft
þú þess vegna að vera spar á kærleika og góðvild til ann-
arra, að þú fyrir vikið verðir sjálfur fátækari að þeim gæð-
um. Þetta sýnir, að það eru vissulega til verðmæti á þessari
jörð, sem ekki lúta lögum efnisins, jafnvel ekki þó þau séu
í nánum tengslum við það.
Það, sem við nefnum anda mannsins eða sál, er vissulega
í nánum tengslum við líkamann á meðan ævi okkar varir
hér á jörð. En hitt fær varla dulizt neinum sæmilega skyn-
bærum manni, að það er sálin, sem yfirleitt stjórnar líkam-
anum, en ekki líkaminn sálinni.
Mannslíkaminn er að vísu afskaplega sniðug og marg-
brotin vél, sem gengur oftast nær mjög prýðilega fyrir því
afli, sem eldisneytið úr daglegri fæðu leggur henni til. Og
þessar vélar eru mjög frábrugðnar að stærð og útliti og enn-
fremur misjafnlega aflmiklar. Þegar á annað borð er búið
að setja þær af stað, ganga þær með sæmilegri umhyggju
og aðgerðum læknanna, þegar á þarf að halda, oft furðu vel
og furðu lengi, þó að þær slitni með tímanum eins og allar
aðrar vélar efnisins, og auðvelt sé að eyðileggja þær með
rangri og heimskulegri meðferð. Hjartað slær án þess stöð-
ugt þurfi að hugsa um að ýta því af stað. öndunin fer fram
reglulega og kirtlar og hormónar inna sín störf af höndum
hávaðalaust. Þessi vél er í gangi einnig á meðan við sofum
og höfum enga hugmynd um það, á sama hátt og vél í bíl
getur gengið sjálfkrafa á meðan bensínið endist, þótt bil-
stjórinn sé þar hvergi nærri.
En þegar til þess kemur að beina orku líkamsvélarinnar
að hinum afskaplega fjölbreytilegu störfum mannlegs lífs,
þá þarf einhvern til þess að stjórna þessari vél ekkert síður