Morgunn - 01.06.1965, Side 78
72
MORGUNN
það mundi takast. Enda varð sú raunin á. í hinum opinberu
skýrslum leyniþjónustunnar um morðið á forsetanum, er
þess getið, að kona að nafni frú Dixon, hafi símleiðis reynt
að koma á framfæri aðvörun til forsetans um það, að hon-
um yrði sýnt banatilræði.
Fyrir þá, sem áhuga hafa á heimsmálunum, skal hér að
lokum sagt frá nokkrum spádómum frú Dixon, sem varða
það, sem hún telur að gerast muni í nánustu framtíð og hafa
heimssögulega þýðingu.
Hún segir, að de Gaulle eigi nú skammt eftir ólifað. Hann
muni andast á árinu 1965 og verði fljótt um hann. Við völd-
um muni taka miklu yngri maður, og verði hann ekki úr her-
foringjastétt. Muni þá um tíma verða meiri festa í stjórnmál-
um Frakka en menn hafa átt að venjast.
Hún segir, að innan tveggja ára muni koma til vopnaðra
átaka milli Bandaríkjamanna og Kína. Ekki muni það þó
verða kjarnorkustyrjöld, en þó sízt minni átök en urðu í Kó-
reustyrjöldinni. Fyrir 1967, segir hún, að kjarnorkuspreng-
ing, sem engin af stórveldunum, heldur minni þjóð valdi,
verði orsök styrjaldar átaka. Ennfremur verði sjálfstæði
Israels stór hætta búin í náinni framtíð.
1 Ameríku segir hún verða muni vaxandi velmegun næstu
fjögur árin. Jafnframt segir hún, að Johnson forseti muni
lenda í miklum stjórnmálaerfiðleikum, einkum vegna heilsu-
brests. Muni og koma til mikilla átaka á flokksþingi demo-
krata 1968 á milli þeirra Johnsons og Roberts Kennedy út
af tilnefningu forsetaefnis. Muni það enda með því, að Ken-
nedy verði valinn forsetaefni, en hvort hann nái kosningu,
vill hún ekkert fullyrða um.
Stærstu árekstrana kveður þó frúin að verða muni á
næstu árum vegna Berlínarmálsins. Muni Rússar þar eiga
upptökin, þegar eftir dauða Ulbrichts, en hann muni látast
af krabbameini. Núverandi stjórn Rússlands verði innan
skamms steypt af stóli og Krushchef hrifsi til sín völdin á
ný með aðstoð hersins. Muni hann gjöra mjög víðtækar