Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 27
Ævar R. Kvaran:
Veggur fordómanna.
Erindi flutt á fundi Sálarrannsóknafélags Islands ]>. 23. nóv. 196Jf.
☆
Þegar þess er gætt, að afi minn, Einar Hjörleifsson Kvar-
an, hóf fyrir tæpum 60 árum brautryðjandastarf sitt fyrir
málefni það, sem þetta félag helgar krafta sina og var for-
seti þess fyrstu 20 árin, eða frá 17. desember 1918 og til
dauðadags 21. maí 1938, þá munuð þið skilja, að mér er það
ánægjuefni að standa hér og flytja erindi.
Fyrir baráttu hans og hins stór-merka kennimanns próf.
Haraldar Níelssonar og annara góðra manna, er hafa haldið
henni áfram, hefur tekizt að gjörbreyta viðhorfi þjóðarinnar
til sálarrannsókna.
,,Draugafélagið“, sem blaðið Þjóðólfur nefndi svo, hefur
orðið furðu lífseigt. Þó varð til dæmis einum manni svo um
fyrstu tilraunafundi þess, að hann efndi til tveggja opin-
berra fyrirlestra í Reykjavík til þess að andmæla þessum
„ósóma“. Fullyrti hann, að þetta samband væri engan veg-
inn við framliðna menn, heldur við djöfla og púka, og var
þeirri skýringu tekið tveim höndum af vissum dagblöðum
í Reykjavík.
Svo gersamlega hefur þessi andstaða gegn sálarrannsókn-
um verið unnin fyrir gýg, að nú á tímum eru Islendingar
taldir í hópi frjálslyndustu þjóða heims í þessum efnum.
Vitanlega á spiritisminn ennþá sína hatrömmu andstæð-
inga, en þeir fara sér hægar en fyrr meir, því nú er svo
komið, að þeir eiga á hættu að verða sér til athlægis.
Því fer þó fjarri, að hér hafi unnizt einhver fullnaðar-
sigur í baráttunni fyrir þessu merka málefni. Þótt opinber
andstaða hafi að vísu hjaðnað, þá hefur, með örfáum und-