Morgunn - 01.06.1965, Side 84
78
MORGUNN
og fylgjast með því, sem á þeim sviðum gerist. Þetta er langt
frá því að vera nokkurt einsdæmi. Hið sama á sér stað á Eng-
landi, Ameríku, Ástralíu og víðar. Hins vegar hafa frændur
okkar á Norðurlöndum innan prestastéttarinnar sýnt þess-
ari stefnu nokkra andúð margir hverjir, sem hefur jafnvel
leitt til þess, að spíritistar hafa sums staðar sagt sig úr kirkj-
unni og stofnað sína eigin söfnuði. Þessa þróun tel ég mjög
óæskilega bæði fyrir kirkjuna og spíritismann. Fyrst og
fremst af þeim sökum, að spíritisminn er ekki og á ekki að
vera trúarbrögð, og einnig af hinu, að sönnun framhaldslífs
og skynsamlegar tilraunir til þess að ganga úr skugga um
tilvist þess og um sambandið við látna ástvini, hlýtur að
verða kirkju og kristindómi ávinningur, en ekki hið gagn-
stæða.
Það er því allt í senn: óskynsamlegt, ómaklegt og óvin-
gjarnlegt í garð kirkjunnar, að ala á úlfúð á milli kirkjunn-
ar og sálarrannsóknanna, líkja miðlum við trúðleikara og
sjónhverfingamenn og telja, að safnaðarstjórn Fríkirkjunn-
ar hafi afstýrt „hneyksli" með því að afturkalla gefið leyfi um
að halda mætti umræddan skyggnilýsingafund í kirkjunni.
En á þá lund ritaði s-a-m nokkur í Morgunblaðið stuttu áður
en fundir þessir í Lido voru haldnir. Naumast er annað hægt
en að brosa að fáfrseði og fjarstæðukenndum fullyrðingum
þessa manns, þegar hann segir: „Hérlendis er spíritisminn
og svonefndar sálarrannsóknir ný trúarbrögð, sem hvorki
eiga samleið með kristnum dómi né erindi í kristna helgi-
dóma.“
Fyrir um það bil hálfri öld heyrðust raddir um það, að
reka bæri mesta andans skörung meðal vígðra manna á Is-
landi, próf. Harald Níelsson, úr þjóðkirkjunni, vegna þess,
að hann játaði opinberlega og af prédikunarstóli trú sína á
framhald lífsins eftir líkamsdauðann og samband við látna
ástvini. Þetta vakti að vonum fyrirlitningu þjóðarinnar, og
varð síður en svo kirkjunni til álitsauka eða eflingar. Nú —
50 árum síðar — hljómar á ný hjáróma rödd, sem naumast
verður skilin öðruvísi en svo, að loka beri kirkjunum fyrir