Morgunn - 01.06.1965, Qupperneq 20
14
MORGUNN
Augnabliki síðar varð hann þess var, að hann var á leið-
inni heim til sín. Hann sveif inn í svefnherbergið, sá líkama
sinn liggja þar í rúminu og fór í hann aftur. Og í sama vet-
fangi var hann þar glaðvakandi og hress eins og ekkert hefði
í skorizt. En á meðan á þessu ferðalagi stóð, kveðst hann
hafa fundið til nálægðar einhvers, sem hann þó ekki gat séð,
en fannst vera með sér til leiðsögu og verndar.
Þegar McBride vaknaði í jarðlíkamanum, reis hann þegar
á fætur og skrifaði hjá sér timann og hvað fyrir hann hafði
borið. Tveim dögum seinna, eða á jóladaginn 1935, heim-
sótti hann föður sinn og sagði honum upp alla söguna. Gamli
maðurinn varð harla undrandi og sagði, að á þessari sömu
stundu hefði hann séð son sinn standa við fótagaflinn sinn,
og orðið svo mikið um, að hann hefði þegar skrifað hjá sér
daginn og stundina.
Þennan dag voru stödd á heimili gamla mannsins mæðgin
úr nágrenninu, sem vottað hafa um að frásögn þessi sé sann-
leikanum samkvæm.“
1 bókinni „Six Theories About Apparitions“, sem út kom
árið 1956, er að finna 41 frásögn svipaðrar tegundar, þar
sem lifandi menn fara úr líkamanum, en eru þó í einhvers
konar líkama, sem þeir ekki aðeins sjálfir skynja sig vera í,
heldur birtast þeir öðrum sýnilegir í þessum líkama.
Kona er nefnd Caroline D. Larsen og var gift prófessor
Alfred Larsen í Vermont. Hún gaf út árið 1927 bók, sem
hún nefndi: „My Travels in the Spirit World“. Þar segir hún
meðal annars frá reynslu sinni á þessa lund:
Kvöld nokkurt haustið 1918 fór hún snemma að hátta.
Veit hún þá ekki fyrri til en hún stendur á gólfinu í svefn-
herberginu og sér hinn jarðneska líkama sinn liggja eftir í
rúminu. Hún sá hann mjög greinilega og kannaðist við hvern
drátt í svipnum, en hann lá grafkyrr og var náfölur eins og
liðið lík. Síðan litaðist hún um í herberginu. Allt var þar eins
og það átti að sér að vera og hver hlutur á sínum stað.
Henni varð aftur litið á líkama sinn í rúminu og gat ekki