Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 19
MORGUNN 13
frábrugðinn hinum, að hann virðist ekki lúta þyngdarlög-
málinu, heldur er unnt að svífa í honum yfir láð og lög.
Þessi draumlíkami er aðsetur persónuleikans og meðvit-
undarinnar. Maðurinn er íklæddur honum í draumnum á
sama hátt og maður er íklæddur jai’ðlíkamanum í vökunni.
Maður finnur þar greinilega til persónuleika síns og persónu-
einkenna og heldur einnig minningum sínum. Og þeir, sem
maður sér í draumnum og hefur samskipti við, eru einnig í
draumlíkama og virðast vera alveg eins í sjón eins og væru
þeir í sínum jarðneska líkama.
Til er það — og um það margar vel vottfastar frásagnir —
að menn fari um stund úr jarðlíkamanum og birtist, meðan
á þessu stendur, á öðrum stað langt í bui’tu í líkama, sem er
svo líkur jarðlíkamanum, að þeir þekkjast greinilega. Sem
dæmi um þetta má nefna eftirfarandi frásögn:
Hinn 23. desember 1935 var bóndi nokkur í Indian Springs
í Indiana, Walter E. McBride að nafni, við vinnu sína eins
og vant var. En allan liðlangan daginn gat hann ekki annað
en verið að hugsa um föður sinn, sem átti heima alllangt í
burtu. Honum fannst endilega, að gamli maðurinn hlyti að
vera veikur. Um áttaleytið um kvöldið, þegar hann var
hættur vinnu og sat einn heima hjá sér, fannst honum, að
stofan fylltist af einhverju hvítu ljósi, og að hann svifi þar
um eins og í lausu lofti. Hann kvaðst hafa verið glaðvak-
andi. Þegar hann hafði þannig lyfzt allhátt frá gólfinu, leit
hann við og sá þá líkama sinn greinilega liggja þar á rúminu.
Því næst fannst honum hann svífa upp í gegn um loftið og
þakið, án þess að það veitti nokkra viðstöðu. Og enn hélt
hann áfram að svífa í loftinu í norðurátt, áleiðis þangað, sem
faðir hans átti heima: Hann fer inn í hús föður síns þvert í
gegn um húsvegginn og nemur staðar við fótagafl rúmsins,
þar sem gamli maðurinn sat upp við dogg. Hann tók eftir
því, að faðir hans horfði á hann með undrun í svipnum, en
ekki virtist hann heyra það, sem McBride sagði við hann.
Eigi að síður varð McBride þess áskynja, að ekkert sérstakt
amaði að gamla manninum.