Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 57
MORGUNN
51
handleggi hans, en brá heldur en ekki í brún, er ég fann
fingur mína smjúga í gegn um hina þi’eklegu vöðva, líkt og
ég tæki um mjúkan svamp. En í sama vetfangi grípur þessi
undarlegi gestur um handleggi mína slíkum heljartökum, að
ég kiknaði við, og kastar mér aftur á bak í fang félaga
minna svo hart, að við hefðum allir dottið, ef það hefði ekki
bjargað, að við hrukkum skáhallt upp að veggnum og varði
það okkur falli. En það er af þessari furðuveru að segja, að
hún snaraðist framhjá mér, opnaði hurðina að Sigríðarstöð-
um upp á gátt og hvarf þangað inn án þess að loka á eftir sér.
Hvorugur félaga minna sá þessa veru, aðeins ég einn.
Hins vegar sáu þeir, þegar opnuð var hurðin að Sigríðar-
stöðum. Við ræddum um þennan kynlega viðburð um stund,
og enginn okkar virtist geta fyllilega áttað sig á því, sem
fyrir hafði komið. Svo óvænt varð það. Og sjálfur fann ég
til engra eymsla í handleggjunum eftir þessi heljartök.
Þegar við læddumst til baka eftir ganginum, stóð hurðin
að Sigríðarstöðum enn galopin. Þar bjuggu tvær skólasyst-
ur okkar, Þóra Brynjólfsdóttir frá Seyðisfirði og Ingibjörg
Einarsdóttir frá Fjallsseli í Fellum. Þegar þær sáu okkur
vera þarna svona seint á ferð, kölluðu þær fram til okkar
og spurðu, hvað slík ósvífni og dónaskapur ætti að þýða, að
rífa opnar stofudyr þeirra, eftir að þær væru háttaðar og
allir ættu að vera setztir að fyrir löngu. En við sórum og
sárt við lögðum, að við værum saklausir af þeim glæp.
Hins vegar kvaðst ég hafa séð einhvern mann opna hurðina
rétt áðan og ganga rakleitt inn til þeirra.
Þær neituðu harðlega, að nokkur hefði komið inn til
þeirra, en séð með eigin augum hurðina opnast, því þær
hefðu ekki verið sofnaðar. ,,Eða kannske þið viljið koma inn
og leita af ykkur allan grun?“ sögðu þær háðslega og í
stríðni. Og satt að segja létum við ekki bjóða okkur það
tvisvar, enda taldi ég rétt að ganga úr skugga um þetta, því
að ég sá manninn fara rakleitt inn til þeirra. Þetta var fljót-
gert. Við litum inn í klæðaskápinn og gáðum undir rúmin.