Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 55
MORGUNN
49
stofuna. Það glymur hátt í tréskónum við gólfið og brakar
í því. Lampinn byrjar að hreyfast og titra. Nú er gengið
um gólfið yfir höfðum okkar þungum skrefum. Síðan er
byrjað að draga þar til stóla og borð. Á þessu gengur góða
stund. Þá er gengið fram í eldhúsið á ný og þaðan fram á
ganginn, þar sem fótatakið smá dó út í f jarska. Allir heyrð-
um við þetta greinilega og samtímis.
Við héldum nú að öllu væri lokið og ræddum um þetta
fram og aftur dálitla stund. Einhvern veginn kom okkur
saman um, að þessi vera hlyti að vera karlmaður, vegna
þess hve þungt var stigið niður og yfirleitt bar þeim saman
um, að þetta væri aðeins endurtekning þess, sem þeir höfðu
áður heyrt. En sem við erum að ræða um þetta, heyrum við
allir fótatakið á nýjan leik. Og nú er umgangurinn ekki uppi
á loftinu, heldur niðri í kjallara. Undir gólfi stofunnar, sem
við vorum í, var matvælageymsla skólans, sem var vandlega
læst um nætur, eins og að líkindum lætur.
Nú heyrum við, að hiklaust er gengið inn í þessa kompu
og tekið þar allhressilega til starfa. Við heyrum, að tunnur
eru dregnar eftir steingólfinu, kassar fluttir til og þeim
hlammað niður á gólfið. Á þetta hlustum við góða stund. Þá
dettur allt í dúnalogn og við heyrum fótatakið fjarlægjast
og hverfa. Eftir þetta urðum við einskis varir, sofnuðum og
sváfum vært það sem eftir var nætur.
Um morguninn vorum við snemma á fótum. Okkar fyrsta
verk var að hitta matráðskonuna að máli og spurðum hvort
gleymzt hefði að læsa matvælageymslunni. Hún varð all-
undrandi á svip, kvaðst hafa læst geymslunni um kvöldið,
vera með lyklana í svuntuvasa sínum og sýndi okkur þá.
Við fórum siðan niður í kompuna, sem reyndist vera tryggi-
lega læst, litum þar vandlega í kringum okkur, en gátum
ekki séð, að þar hefði verið hreyft við nokkrum hlut.
Síðan afhentum við Guðgeiri kennara lykla hans og sögð-
um honum frá því, sem við höfðum heyrt um nóttina. Þótti
honum þetta að vonum harla einkennilegt. Hann fór með
okkur upp á loft, lauk þar upp herbergjum sínum, bæði eld-
4