Morgunn


Morgunn - 01.12.1975, Síða 13

Morgunn - 01.12.1975, Síða 13
DR. HELGI PÉTURSS 115 Á langri ævi hefi ég átt því láni að fagna að kynnast mörg- um merkum mönnum og ágætum og að eignast trúnað þeirra ekki allfárra. Á meðal þeirra sem ég minnist af mestum hlýleik er Theodór Ambjömsson (d. 1939). Hann var fágæt- lega heill, merkur og góður maður, auk þess, að vera mikið karlmenni, og það hygg ég að mér sé óhætt að fullyrða, að hann væri ramskyggnastur allra þeirra manna er ég hefi haft náin kynni af. Langalangafi lrans var Þórarinn sýslu- maður á Grund, en á meðal niðja Þórarins (þ.e. í Thoraren- sensættinni) hefir verið mikið um dulrænar gáfur; t. d. hafði Bogi Melsteð (sem einnig var trúnaðarvinur minn) fengið sinn skerf af þeim, en þó ekki svo, að um það væri unnt að jafna honum við Theodór. Svo fór Theodór dult með þennan hæfileika sinn að sumir þeir, er lengi kynntust honufn, vissu ekkert um skyggnigáfu hans. Síðasta misserið sem Theodór lifði, var honum það án alls efa ljóst, að skammt hlyti hann að eiga ólifað, því að hjartabilun sú, er loks varð honum að fjörtjóni, var þá komin á svo hátt stig að einsætt var að hverju fór. Frá sumum þeim sýnum, er honum birtust þá, ætla ég alveg víst að hann hafi engum sagt nema konu sinni og mér, en sú kona fannst mér löngum hafa óvenjulega djúpan skilning á dulrænum efnum. Síðasta kvöldið sem Theodór lifði sat hjá þeim gestur sem ég ætla að væri náinn vinur þeirra, Þórður Þórðason tré- smíðameistari, gagnmerkur maður og á þeim timum alkunn- ur borgari í Reykjavík. Þegar komið var að háttatima, fór Theodór niður i kjallara til þess að ganga frá miðstöðinni fyrir nóttina. Þórður fylgdist með honum. Theodór bograði við að fela eldinn, rétti sig síðan upp og horfði þá fram fyrir sig og upp á við, virtist stara þar á eitthvað, og segir: „Hvað er nú þetta?“ I sömu svipan hné hann út af og þar með var öllu lokið. Hann var látinn. Vera má að tilgangslaust sé að geta nokkurs til um það, hvað það var sem hann sá og honum fékk undrunar. En manneðlið er nú einu sinni svona spurult að ósjálfrátt gerum við þetta. Og er þá önnur tilgáta sennilegri en sú, að hann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.