Morgunn - 01.12.1975, Page 33
SVEPPURINN HELGI
135
Maine. Það er eitt kvöldið, að Pnharch læknir ákveður að
reyna dáleiðslu við Harry Stone. Þá er þar viðstödd vinkona
hans frú Bouvarie, sú, er fyrst hafði kynnt hann fyrir Stone.
En þegar hann er að dáleiða Harry, gerist það furðulega, að
frú Bouvarie dáleiðist og fellur í eins konar trans, en það hafði
aldrei hent hana áður. Segir hún í dáinu, að hún hafi lifað áður
og átt heima í Sýrlandi. Harry hafði alltaf haldið því fram, er
hann var í dái, að hún væri kona að nafni Antinea. Frú Bou-
varie segir nú frá því hvar hinn helgi sveppur amanita mus-
cara, sem er afar fágætur í Maine, gæti fundizt þarna í ná-
grenninu. Er hún vaknar úr dáinu, liefur hún ekki liugmynd
um hvað gerðist, en Puharich segir henni að sjálfsögðu frá því.
Og tveim dögum seinna, þá finnur hún sveppinn á stað þeim,
sem hún hafði lýst og reyndist ókleift að finna fleiri jurtir,
þótt víða væri leitað.
En þetta nægir vísindamanninum vitanlega hvergi nærri til
þeirra rannsókna, sem hann hyggst gera með þessa merkilegu
jurt og áhrif hennar. Og er skemmst frá því að segja, að með
feiknalegri fyrirhöfn tekst honum að lokum að afla sér nægi-
legra birgða. Nú er hann tilbúinn til þess að hefja athuganir
sínar á verkunum amanita muscaria á manninn. En hér verð-
ur hann að gæta itrustu varúðar, því að jurt þessi er baneitruð.
Aðalefnin í jurtinni, sem áhrifum valda á neytanda eru þrenn
muscarine og atropine, sem bæði eru banvæn, en hafa andstæð
áhrif hvort á annað í mannslíkamanum, og þríðja efnið bufo-
tenin, sem valdið getur ofsjónum. Puharich gefur nú ýmsum
mönnum örsmóa skammta af sveppnum og reynist hann ekki
hafa nein sérstök áhrif á venjulegt fólk. En öðru máli gegnir
um þá, sem eru það sem hann kallar „sensitives“, næmir.
Þá koma fram athyglisverðar verkanir. Það, sem gerist, þegar
Harry Stone etur af sveppnum er það, að hann fellur þegar í
dásvefn, og persónan Ra Ho Tep tekur við stjórninni. Ra Ho
Tep krefst þess, að sér sé færður sveppurinn, amanita muscaria,
og sýnir síðan í smáatriðum hvernig á að útbúa hann og nota
á réttan hátt. Aldous Huxley, vinur Puharichs, fylgdist með
tilraunum hans af mikilli athygli. Þegar hér er komið í til-