Morgunn - 01.12.1975, Síða 43
SÆTISTIIjRATJNIR
145
myndir um sætistilraun, sem ákveðið var að halda kvöldið
eftir í Enschede fyrir kvenfélag sveitarinnar í nágrenninu.
Að þessu sinni sagði Croiset fyrir niu atriði. „Þetta er
fjórða sæti í þriðju röð frá hægri. 1. Þar sé ég grannvaxinn
ungan mann í dökkum fötum með greitt upp frá enninu.
2. Hann er með litinn vasaklút í brjóstvasanum. 3. Hann er
sífellt að tala við unga stúlku, um tuttugu og fjögurra ára
gamla, sem situr við hlið hans. 4. Þessi stúlka er með rós-
rauðar kinnar. Hún er í rauðu vesti, og ein nöglin á fingri
hennar er dálitið skemmd. Það er nöglin á löngutöng hægri
handar. 5. Vinstra megin við hana situr fullorðin kona. Þessi
kona er með skiptingu i hárinu. Hún er í svörtum kjól. Hún
hefur hvöss blá augu og leikur ævinlega við það sem hún
hefur í höndum sér. 6. Þetta fer i taugarnar á eiginmanni
hennar. 7. Eiginmaðurinn hennar er digur, að verða sköll-
óttur og notar gleraugu þegar hann les. 8. Hann datt á vinstri
fót og er með ör fyrir neðan vinstra hnéð. 9. Fullorðna kon-
an á son, sem er klæddur einkennisfötum flotans. Hann er
að minnsta kosti sjómaður. Ég sé tundurskeyti springa. Hefur
þessi kona misst ættingja í slíkri sprengingu við strönd
Atlantshafsins . . . í einhverri höfn?“
Þessar upplýsingar voru fengnar fundarstjóra í innsigluðu
umslagi fyrir fundinn þann 16. nóvember.
Hvernig bar þeim nú saman við sannreyndir? í hinu valda
sæti sat ungur maður sem að útliti kom heim við þrjú fyrstu
atriðin í lýsingu Croisets. Á fundinum sagði hann við þenn-
an unga mann: „Þér eruð með ör fyrir neðan vinstra hnéð.“
Furðulostinn viðurkenndi maðurinn að þetta væri rétt.
Einnig kom það heim að við hlið hans sat ung stúlka, rjóð
í kinnum, sem hann var alltaf að tala við. Upplýsingar Croi-
sets um hana reyndust því réttar, enda þótt hún væri reyndar
tuttugu og sex ára í stað tuttugu og fjögurra.
Vinstra megin við hana sat fullorðin, bláeyg kona í svört-
um kjól, sem einnig viðurkenndi að lýsingin á sér væri rétt.
Auk þess reyndist lýsing hins skyggna manns á eiginmanni
hennar einnig rétt. En nú kom babb í bátinn. Þessi fúllorðna