Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 47
SÆTISTII.RAUNIR
149
sem hafði sterk áhrif á hana. (Rétt. Rita viðurkenndi að hún
elskaði dýr. Vinkona hennar ein gaf henni nýlega mynd af
ikoma og gladdist hún mjög við gjöfina.)
Þegar hún gengur heim sér hún við enda götu sinnar
lítið torg. Á þessu torgi stendur sívöl bygging með bogum.
(Rétt. Við enda götu Ritu var lítið torg með byggingu með
mörgum bogum. Það var eina byggingin í nágrenninu með
þeim hætti.)
Hefur hún heima hjá sér rússneskan samovar eða tryk-
neskar pípur með samfelldum lykkjum? (1 fyrstu gat Rita
ekki munað eftir neinni slikri pípu. En þegar Croiset sýndi
henni með fingrum sínmn hvernig lykkjunum á tyrkneskum
pípum er háttað, þá mundi Rita eftir henni og svo einnig
móðir hennar sem var meðal fundargesta. Báðar mundu að
þær hefðu dáðst að slíkri pípu, sem þær hefðu nýlega séð á
heimili vinar síns.)
Hún er í svörtum skóm. Skóleðrið er dálitið laskað. Það er
rifa á því. (Dr. de Boni sýndi öllum, að Rita var í svörtum
skóm. En þótt Croiset fullyrti að það væri rifa á þeim, sagðist
Rita ekkert lun það vita. En eftir fundinn gekk Rita til dr.
Boni og viðurkenndi að það væni rifur á báðum skónum
hennar og sýndi honum þær. Hún hafði tekið nærri sér að
vera í svona gömlum skóm á fundinum.)
Komst hún í einhverja geðshræringu í gær vegna einhvers
sígarettuveskis? Lét hún það detta á gólfið? (Daginn áður
hafði Rita keypt sígarettuveski sem gjöf handa vini. Þegar
hún tók af því umbúðirnar heima, datt veskið á gólfið og hún
óttaðist að það hefði skemmst.)
Hver er gamli herrann með yfirskeggið? Hefur hún mál-
verk af honum i herberginu sínu? (1 herbergi Ritu er mynd
af afa hennar, gömlum herra með stórt yfirskegg.)
Henti það hana nýlega að dautt dýr úr slátrarabúð datt
fyrir framan hana?“ (Nokkrum dögum áður henti það þeg-
ar Rita gekk framhjá slátrarabúð, að dauður kjúklingur, sem
hékk yfir innganginum, féll fyrir fætur henni.)