Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 51
BHAGAVAD GITA
153
augnamiði að ná slíkri heilbrigði og um leið lífsþroska eru
þeir, sem gengist hafa þessum félagsskap og stefnumörkum
hans á hönd, hvattir til að horfa hátt og leitast við að hafa
víða lífssýn. Þeim er ætlað að leita sannleikans allsstaðar og
hafa augun opin fyrir öllu, sem þeir megna í sambandi við líf
sitt, er orðið gæti til að auðga andann og víkka út þekkingar-
sviðin. Markmiðið er að öðlast víðtækari og dýpri vitund um
veruleikann og allífið. I slíkri leit hlýtur sannleiksiðkandinn
fljótt að verða þess áskynja, hvilík takmörk þvi eru sett hversu
miklu af veruleikanum eða sannleikanum sjálfinn er mögu-
legt að kynnast fyrir beina reynzlu eða snertingu, vegna tak-
markana mannsins sjálfs sem og skynsviða hans. Og þetta á
engu siður við þótt manninum hafi tekist að vikka út þessi
skynsvið sín í verulegum mæli með tólum og tækjum. Hver
sannur leitandi hlýtur að komast að raun um að honum getur
ekki orðið verulega ágengt nema honum takist að finna leiðir
utan hinna venjulegu, sem eru þess færar, að opna honum
sjónir til hinna ýmsu hliða hins dulda veruleika sem allir
leitendur skynja að búa muni að baki hins sjáanlega; óþekkj-
anlegs veruleika og fyrirmæra allífsins; — fyrirbæra, sem tól
og tæki ná ekki til að kanna; — fyrirbæra, sem þannig verða
á engan hátt þekkt fyrir beina reynzlu.
Leiðir heimspekilegrar hugsunar.
Ein hagkvæmasta leiðin sem leitendurnir hafa fundið til
að skapa möguleika til skilnings á hinu dulda og óþekkta, eru
leiðir heimspekilegrar hugsunar. Og það verður hverjum ljóst
sem hugsar af alvöru um þessi mál, að það er ekki að ófyrir-
synju að þetta meðal í sannleiksleitinni hefir orðið óaðskiljan-
legur hluti allra trúarbragða, í minni eða stærra mæli. Það
er ljóst að hugræn speki, eins og heimspekin, skapar vissu-
lega hinn nauðsynlega möguleika fyrir anda mannsins til að
greina hið hulda og lítt skiljanlega að baki hins sýnilega, þ.e.
hinn ósýnilega sannleika og fyrirbæri í alheimi. Heimspek-
10