Morgunn


Morgunn - 01.12.1975, Side 53

Morgunn - 01.12.1975, Side 53
b:tagavad gita 155 daglegu veraldlegu sjónarmiði? — Sem svar við þessu má segja, að þegar svipast er um á sviði heimspekinnar komi í ljós margir bjartir og fagrir sannleiksgeislar. Þar er þó einnig að finna undantekningar, sem ekki verður líkt við fagurt geislablik, heldur ægileiftur skínandi sólar. Slík framsetning er bregður logabirtu á hið mikla sjónarspil lifsfyrirbæranna: efnisveruleikann, og líf og æfiskeið manna. Af framsetningu hugsunarinnar stafar þar slíkum ljóma, að þeir sem meðtaka hina gullnu birtu, er hin stórkostlega andlega sýn bregður yfir veraldarvegferð mannsins i ljósi vizkunnar sem og yfir allifið, — hafa fyrir slíka fræðslu möguleika til að sameina sannleikann lífi sínu, og verða þannig viðsýnni, betri og full- komnari menn en ella, fyrir sakir aukins skilnings. Dagsbrún í austri, — hin miklu IjoÖ. Eins slík uppspretta gullinnar birtu vizku og heimspeki- legrar snilli eru hin miklu forn-indversku helgiljóð úr Maha- barata ljóðabálknum, Bhagavad Gíta. — Þessi bók i bundnu máli hefir verið þýdd á íslenzku af tveimur vökumönnum andans, sem af kærleika hafa viljað flytja löndum sínum hinn mikla og göfuga boðskap, sem rit þetta hefir að geyma. Þeir eru Sigurður Kristófer Pétursson og Sören Sörenson, sem báða má með sanni kalla fræðaþuli og mannfræðara. 1 þýðingu Sigurðar Kristófers, sem út kom árið 1924, nefnast ljóðin „Hávamál Indíalands“, en i tveim þýðingum Sörens Sören- sonar, hinni fyrri útgefinni 1939, nefnast þau Ljóð Krishna, en hinni síðari er út kom 1965, Indversk Helgiljóð. Bók þessi hefir verið þýdd á fjölda tungumála og ber mörg mismunandi heiti, eftir því hvernig efnið hefir snert þá, sem þýddu. Þannig hefir það einnig hlotið heiti eins og Söngur Guðdómsins, Hin Himnesku Ljóð, Söngur Sálarinnar, og fleiri svipuð. öllum þýðendum og öðrum sem kynnzt hafa, hefir borið saman um, að hér væri á ferðinni túlkun og opinberun hinnar háleitustu heimspeki — og trúarhugsana í svo stórbrotnum mæli, að

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.