Morgunn - 01.12.1975, Blaðsíða 56
158
MORGUNN
kenninga sem bókin flytur. Þessu er að sjálfsögðu mjög svo
miður farið, en orsökin er hinsvegar sú að skynjun þessa er
ekki einföld og liggur alls ekki opin fyrir. Þó er ritið og ljóðin
i sjálfu sér og i heild sinni raunverulega ein stór mynd. Ef
sú mynd næst ekki, getur orðið erfitt eða ókleift að skilja
boðskap ljóðanna. — Og án skýringa getur þannig skipast svo,
að þótt bókin sé ekki löng eða stór, þá getur lengd hennar
orðið til að fela heildarsýnina að baki. Fari svo, skynjast
boðskapurinn ekki með réttum hætti eða a.m.k. með ófull-
komnari hætti, þrátt fyrir góða viðleitni; og margir gefast
þannig upp. -— Sé efnið dregið saman eins og hér verður
leitast við að gera, á að vera auðveldara að ná heildarsýninni
og fá hinn rétta skilning til að geta meðtekið boðskap ljóðanna
óstyttra.
Samt verður ekki komist hjá að segja hér, að þrautseigju
er þörf og kafa verður djúpt í hugsunina, ef takast á að til-
einka sér þetta háleita efni að gagni. Efnið verður að vera
leitandanum stöðugt i huga ef árangur á að verða til hjálpar
i daglegu raunhæfu lifi. Ef heildarsýnin næst verður þetta
kleift, og það auðvelt sem annars getur valdið örðugleikum
og orsakað uppgjöf og fráhvarf frá efni bókarinnar. Mark-
miðið er að boðskapur ljóðanna geti raunverulega sameinast
lífsviðhorfum leitandans og raunverulega orðið hluti af dag-
legu lífi hans honum til lífsbóta, fyrir aukinn skilning á eðli
eigin lífs.
Umgjörð og baksvið Ijöðanna, — lífsorrustan.
Hin mikla umgjörð sem áður er talað um birtist í því, að i
ljóðunum er lifið sett upp sem líking af styrjöld. 1 rauninni
getur hver maður séð að þetta er á engan veg fjarstætt, en
við að skoða lífið þannig fást hinsvegar algjörlega ný viðhorf
til lífsbaráttunnar í heild. Réttur skilningur á því hvað út-
heimtist af þeim sem verður að taka þátt í orrustu lífsins
sýnir stöðu einstaklingsins í allt öðru ljósi en ella. Mætti segja
að þannig séð og í viðum skilningi sé orrusta lífsins gullið