Morgunn - 01.12.1975, Page 77
. Síðastliðið haust komu hér við í höfuðborg-
o ir gestir. jnnj £ vegum SRFf hjón frá Suður-Afríku að
nafni David og Nellie Lapato. Þau eru bæði huglæknar, sem
starfa með aðstoð látinna lækna. Þau komu hér við í nokkra
daga á heimleið eftir fyrirlestraferð um Bandarikin, þar sem
þau sýndu lækningar á fjöldafundum og vöktu mikla athygli
fyrir hæfileika sína. Þrátt fyrir það, að þau gætu einungis
dvalið hér í fjóra daga (24.-28. okt.) tókst þeim að halda um
50 einkafundi og auk þess opinbera lækningafundi í Norræna-
húsinu og Félagsheimili Seltjarnarness. Athyglisverður ár-
angur náðist á hinum opinberu fundum, þar sem lækningar
virtust fara fram að fundargestum aðsjáandi. Hjónin hafa
stundað andlegar lækningar í fjóra áratugi með góðum ár-
angri.
David Lapato var í þessari Ameríkuferð kjörinn í stjórn
alheimssamtaka spíritista (International Spiritual Federa-
tion), og sýnir það hvers álits hann nýtur.
Þá hefur la'kningamiðillinn Joan Reid (frb. Ríd) enn kom-
ið hingað á vegum SRFf og dvaldist hún í höfuðborginni við
lækningar frá 4. nóv. til 16. desember s.l.
Hér á landi bíður hennan jafnan langur listi sjúklinga, því
hún er þegar orðin fræg meðal íslendinga fyrir frábæran
árangur i lækningum. Megi hún koma sem oftast til okkar.
Guðspeki-
félagið
aldar gamalt.
Þann 17. nóv. árið 1975 var Guðspekifélagið
aldar gamalt. Það var stofnað í New York
í Bandaríkjunum árið 1875. Stofnendur þess
voru þau Madame Helena P. Blavatsky og