Morgunn - 01.12.1975, Page 78
180
MORGUNN
H. S. Olcott ofursti og fleiri, en framannefndar persónur voru
hugur og heili þessa alþjóðlega félagsskapar til dauðadags.
Markmið félagsins er þetta:
I. að mynda kjarnann í alheimsbræðralagi mannanna án til-
lits til kynþátta, trúar, kyns, stéttar eða litarháttar.
2. að hvetja til rannsókna í samanburðar-trúarbrögðum,
heimspeki og vísindum.
3. að rannsaka óútskýrð náttúrulögmál og blundandi öfl í
manninum.
Þetta merkilega félag valdi sér að einkunnarorðum: ENGIN
TRtJARBRÖGÐ ERU SANNLEIKANUM ÆÐRI. Ekki verða
fundin betri einkunnarorð fyrir nokkurt félag sannleiksleit-
enda. MORGUNN óskar íslands-deild Guðspekifélagsins til
hamingju með þetta merkisafmæli og árnar íslenska Guð-
spekifélaginu heilla og velgengni í framtíðinni.
Tveir sjóðir.
Samkvæmt beiðni stofnenda nýs sjóðs til
styrktar rannsóknum í dulsálarfræði birtir
MORGUNN skipulagsskrá hans hér á eftir. Með stofnun þessa
nýja sjóðs eru nú til tveir sjóðir ætlaðir til styrktar sálarann-
sóknum á íslandi. Árið 1971 sýndi frú Elínborg Lárusdóttir,
rithöfimdur, SRFl þann vinarhug, að gefa kr. 50,000,00 til
stofnunar sjóðs að styrkja rannsóknir dularfullra fyrirbæra.
Hann heitir KVARANSMINNI.
Vonandi vegnar þessum sjóðum báðum vel.